Hoppa yfir valmynd
18. júní 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 321/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 18. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 321/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040095

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. apríl 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. apríl 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. janúar 2019. Þar sem kærandi var með vegabréfsáritun útgefna af þýskum stjórnvöldum var þann 23. janúar 2019 send beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. 2. mgr. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá þýskum yfirvöldum, dags 11. febrúar 2019, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 9. apríl 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 16. apríl 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 3. maí 2019. Þá bárust viðbótargögn þann 6. júní 2019.

III.Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að þýsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Þýskalands.

IV.Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því hvernig hann hafi hlotið vegabréfsáritun og styrk til þess að sækja nám í Þýskalandi. Kærandi hafi sótt nám við háskóla í Saxlandi (þ. Sachsen) en hafi ekki getað sinnt námi [...]. Skólastyrkur kæranda hafi því verið felldur niður og honum gert að yfirgefa húsnæði það er hann dvaldi í. Þá komi fram að kærandi hafi orðið var við mikla fordóma í Þýskalandi. Aðstæður kæranda hafi þó, að hans eigin sögn, þrátt fyrir það verið í lagi. Kærandi hafi greint frá því að þar sem hann hafi átt von á því að vera sendur aftur til heimaríkis hafi hann lýst yfir vilja sínum til þess að sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi en verið tjáð að hann gæti það ekki sökum skólastyrksins. Kærandi hafi einnig greint frá því að honum hafi verið tjáð að aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi væru afar bágbornar. Af þeim sökum vegna þess mótmæli hann því að vera sendur aftur til Þýskalands.

Í greinargerð kæranda kemur einnig fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi verið spurður út í heilsufar sitt. Þar hafi komið fram að [...] en að í menningu hans tíðkist ekki að karlmenn viðurkenni að eiga við andleg vandamál að stríða. [...]. Þá hafi fjölmörg atvik haft áhrif á heilsufar kæranda, m.a. atriði sem hafi varðað aðstæður hans í heimaríki. [...].

Í greinargerðum kæranda til kærunefndar útlendingamála og Útlendingastofnunar er fjallað um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Þar er m.a. vísað til þess fjölda sem hafi sótt þar um alþjóðlega vernd og þess að árið 2017 hafi 28% allra umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Evrópusambandsins lagt fram umsókn í Þýskalandi. Þá er vísað í skýrslur um aðstæður í Þýskaland, m.a. varðandi aðgengi að lögfræðiþjónustu sem kærandi telur takmarkaða, og gagnrýni frjálsra félagasamtaka á framkvæmd viðtala og ákvarðanir þýskra stjórnvalda varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd, þ.m.t. þegar umsókn hefur fengið svonefnda flýtimeðferð og misræmi sem kærandi telur vera á meðferð umsókna eftir landsvæðum. Þá er í greinargerð fjallað um skýrslur sem greina frá andúð, ógnunum og ofbeldi í garð flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi m.a. á því að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, um sérstakar ástæður, eigi við í máli hans vegna þeirra aðstæðna sem bíði hans í Þýskalandi. Í því sambandi vísar kærandi m.a. til [...] og þess að þýskum stjórnvöldum hafi átt erfitt með að mæta þörfum flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Að mati kæranda verði staða hans því verulega síðri en staða almennings í Þýskalandi. Þá vísar kærandi m.a. til þess að það sé ekki skilvirkt að senda kæranda til Þýskalands þar sem mikið álag sé á hæliskerfið og beri stjórnvöldum við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi að horfa sérstaklega til skilvirkni samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins, sbr. ákvæði reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017.

V.Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Þýskalands á umsókn kæranda er byggð á 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja þýsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi 37 ára karlmaður sem á fjölskyldu í heimaríki. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...]. Það er mat kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2019),
  • Asylum Information Database, Housing out of reach.The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019.
  • Freedom in the World 2019 – Germany (Freedom House, apríl 2019),
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
  • Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar skuli sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Lögum samkvæmt eiga umsækjendur rétt á gistirými í tímabundnum móttökumiðstöðvum (þ. Aufnahmeeinrichtung) í allt að sex mánuði frá því að þeir lögðu umsókn sína fram. Að þeim tíma liðnum eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á að fá úthlutað gistirými í öðrum móttökumiðstöðvum (þ. Gemeinschaftsunterkünfte). Í skýrslu Asylum Information Database kemur fram að árið 2018 hafi meðalmálsmeðferðartími útlendingastofnunar á umsóknum um alþjóðlega vernd verið um átta mánuðir. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á viðtali með aðstoð túlks, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni. Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun geta kært niðurstöðuna til stjórnsýsludómstóls (þ. Verwaltungsgericht). Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (d. Folgeantrag) um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarumsókn undir dómstóla.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þó hafi þýsk yfirvöld sætt gagnrýni frjálsra félagasamtaka vegna yfirfullra móttökumiðstöðva og búsetuúrræða en vegna þess hve verulega hafi dregið úr umsóknum á síðustu árum hafi ástandið batnað til muna. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt dómaframkvæmd þýskra dómstóla felur orðalagið „nauðsynleg heilbrigðisþjónusta“ ekki einvörðungu í sér bráðaþjónustu. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna og annarra meðferðaraðila. Þó eru dæmi um að umsækjendur hafi átt í erfiðleikum með að nálgast slíka þjónustu, m.a. vegna fjarlægða milli búsetu- og meðferðarúrræða. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að glæpum gegn innflytjendum í Þýskalandi hafi fjölgað á undanförnum árum en nýlega hafi stjórnvöld gert aðgerðaráætlun til að sporna við fordómum þar í landi.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Þýskalandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá benda framangreind gögn til þess að kærandi komi til með að hafa fullnægjandi aðgang að heilbrigðisþjónustu í Þýskalandi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda enn fremur til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Að öðru leyti er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður í sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 20. mars 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 17. janúar 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi athugasemd við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, þ.e. við beitingu stofnunarinnar á reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga, sem hann telur að skorti lagastoð.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Kærunefnd telur því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 17. janúar 2019 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Þýskalands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Anna Tryggvadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum