Hoppa yfir valmynd
10. september 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tilnefningar til fjölmiðlaverðlauna á Degi íslenskrar náttúru

Jarðarberið.

Dómnefnd hefur tilnefnt þrjá til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem veitt verða á Degi íslenskrar náttúru, þriðjudaginn 16. september næstkomandi.

Tilnefnd til verðlaunanna eru:

Gunnþóra Gunnarsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu

Fréttablaðið birti í sumar greinaflokk undir heitinu Útivist og afþreying eftir Gunnþóru Gunnarsdóttur, þar sem sjónum er beint að áhugaverðum náttúruperlum í öllum landshlutum. Framsetning  efnisins er aðlaðandi og til þess fallin að kveikja löngun hjá lesandanum til að ferðast um landið og sjá það með eigin augum. Textinn er stuttur, en þó er hvert orð vandlega valið, og fallegar ljósmyndir, kort og textabox gera efnið freistandi til aflestrar. Gunnþóra Gunnarsdóttir er tilnefnd til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2014 fyrir hnitmiðaða, einfalda og fallega umfjöllun um náttúru Íslands.

Just.In.Iceland

Just.In.Iceland syngur íslenskri náttúru óð með hjálp mismunandi samfélagsmiðla á borð við Facebook, Pinterest, Twitter og Vimeo. Um er að ræða framtak áhugamanna í því augnamiði að kynna sérstöðu Íslands fyrir umheiminum með því að skapa stafrænan vettvang til að birta og deila fagmannlega teknum ljósmyndum af íslenskri náttúru og lífríki. Just.In.Iceland er tilnefnt til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2014 fyrir að nýta sér Netið og gagnvirkni þess með frábærum árangri enda er ljósmynda- og kvikmyndaefnið á síðum miðilsins mikið bæði að vöxtum og gæðum.

RÚV, hljóðvarp og sjónvarp

Umfjöllun RÚV um almannarétt og gjaldtöku fyrir aðgang að náttúruperlum á liðnu ári hefur verið mikil að vöxtum og alhliða, allt frá stuttum fréttaskotum til ítarlegra og vandaðra skýringa eða umræðu, þar sem öll mikilvægustu sjónarmið málanna hafa komið fram. Verður hvorki gert upp á milli sjónvarps og hljóðvarps í þessu sambandi né einstakra þátta, þótt virðist mega nefna sérstaklega Morgunútvarpið, Spegilinn, Sjónmál og Kastljós, heldur er fjölmiðillinn RÚV tilnefndur til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2014 í einu lagi.

Verðlaunagripinn, Jarðarberið, hannaði Finnur Arnar Arnarson.

Í dómnefnd sitja Þór Jónsson formaður, Árni Gunnarsson og Snæfríður Ingadóttir.

Þakkað er fyrir allar ábendingar og tilnefningar vegna verðlaunanna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum