Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 564/2020-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 564/2020

Fimmtudaginn 25. febrúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. október 2020, um að fella niður bótarétt hans í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 19. maí 2020 og var umsóknin samþykkt 10. ágúst 2020. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 16. október 2020, var kæranda tilkynnt að óljóst væri hvort hann teldist vera í virkri atvinnuleit í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann svaraði hvorki síma né tölvupósti. Óskað var eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna þessa. Svar barst frá kæranda með tölvupósti 20. október 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. október 2020, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr., laga nr. 54/2006, þar sem hann hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 4. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 7. janúar 2021, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. janúar 2021. Viðbótargögn bárust frá kæranda 20. janúar 2021 og voru þau send Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. janúar 2021. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi sent Vinnumálastofnun tölvupóst með skýringum á því hvers vegna hann hafi ekki svarað símtali frá stofnuninni. Kærandi vonist eftir aðstoð þar sem hann sé atvinnulaus og atvinnuleysisbætur séu eina innkoma hans á þessari stundu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að málið lúti að 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim, sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins, sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt g-lið 1. mgr. 14. gr. laganna felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á.

Kærandi hafi fengið tilkynningu 22. september 2020 frá stofnuninni að þann 23. september 2020 á milli klukkan 13 og 15 myndi ráðgjafi hjá stofnuninni hringja í hann til þess að kanna stöðuna hjá honum og virkni atvinnuleitar. Erindið hafi verið sent á netfang kæranda. Einnig hafi kærandi fengið smáskilaboð með upplýsingum um boðað símaviðtal. Kærandi hafi verið beðinn um að undirbúa sig vel ef hann hefði einhverjar spurningar tengdar atvinnuleit, námskeiðum eða öðru tengdu atvinnuleysisbótum. Þann 23. september hafi ráðgjafi hringt í kæranda en hann ekki svarað símanum. Í framhaldinu hafi kærandi sent tölvupóst til stofnunarinnar þar sem fram komi að hann hafi misst af símtalinu og að hann hafi reynt að hringja til baka en ekki náð sambandi við stofnunina. Í framhaldinu hafi verið reynt að ná í kæranda í tvígang en slökkt hafi verið á síma hans. Í heildina hafi verið reynt að ná í kæranda þrisvar sinnum vegna boðaðs símaviðtals. Í fyrsta skiptið hafi kærandi ekki svarað og í seinni tvö skiptin hafi verið slökkt á síma hans. Þann 29. september 2020 hafi ráðgjafi stofnunarinnar tilkynnt til Greiðslustofu að kærandi hafi ekki svarað boðuðu símaviðtali og að í þrígang hafi verið reynt að ná í kæranda. Kæranda hafi verið gefinn kostur á að skila skýringum til stofnunarinnar vegna þessa. Engar skýringar hafi borist frá kæranda. Í tölvupósti frá kæranda 20. október 2020 komi ekki fram neinar skýringar á því af hverju hann hafi ekki svarað ítrekuðum símtölum stofnunarinnar. Þar sem afstaða kæranda hafi ekki legið fyrir, þrátt fyrir að kæranda hafi verið gefinn kostur á að koma henni á framfæri, hafi það verið niðurstaða stofnunarinnar að kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði í skilningi 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 9. júlí 2019 hafi kærandi sætt niðurfellingu bótaréttar vegna ótilkynntrar vinnu samkvæmt Ríkisskattstjóra. Því sé nú um að ræða niðurfellingu bótaréttar öðru sinni. Sá sem hafi sætt niðurfellingu bótaréttar áður á sama bótatímabili skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Bótaréttur kæranda sé því felldur niður í þrjá mánuði. Sá tími sem hafi verið eftir af fyrri biðtíma leggist saman við síðari tilkomin viðurlög. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009 um breytingu á lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að ráðgjafi Vinnumálastofnunar hugðist taka símaviðtal við kæranda 23. september 2020 sem kæranda var tilkynnt um daginn áður. Kærandi svaraði ekki símtalinu en sendi stofnuninni erindi samdægurs með þeim upplýsingum að hann hafi misst af símtalinu og reynt að hringja til baka. Kærandi óskaði eftir leiðbeiningum um hvort hann ætti að hringja aftur eða hvort hringt yrði í hann. Kæranda var þá tjáð að líklega hafi ráðgjafi eingöngu viljað heyra í honum. Nokkrum dögum síðar er skráð í samskiptasögu kæranda og Vinnumálastofnunar að hringt hafi verið tvisvar sinnum í kæranda en það hafi verið slökkt á síma hans. Á grundvelli þessa tók Vinnumálastofnun þá ákvörðun að fella niður bótarétt kæranda með vísan til þess að hann hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum í skilningi 58. gr. laga nr. 54/2006.

Við mat á því hvort heimilt sé að beita viðurlögum samkvæmt 58. gr. laganna kemur til skoðunar hvort kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum með sannanlegum hætti, enda um íþyngjandi ákvörðun að ræða. Að mati nefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Í tilviki kæranda er í reynd um að ræða tvö símtöl til hans sem ekki náðu í gegn þar sem slökkt var á símanum. Ekki liggur fyrir að Vinnumálastofnun hafi gert frekari tilraunir til að ná sambandi við kæranda, svo sem með því að senda honum tölvupóst eða skilaboð með beiðni um að hafa samband. Þá liggur ekki fyrir að kærandi hafi verið upplýstur um afleiðingar þess að svara ekki símtölum frá stofnuninni eða að hafa slökkt á símanum. Úrskurðarnefndin getur ekki fallist á að það að hafa slökkt á farsíma sé háttsemi sem jafngildi höfnun á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Að því virtu er hin kærða ákvörðun felld úr gildi og lagt fyrir Vinnumálastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. október 2020, um að fella niður bótarétt A, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum