Hoppa yfir valmynd
7. júní 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Nýtt þjóðleikhúsráð

Í ljósi þess að staða þjóðleikhússtjóra er nú laus til umsóknar hafa fulltrúar í þjóðleikhúsráði sammælst um að segja sig úr ráðinu. Þetta gerðu þau til að umsóknarferlið sé hafið yfir allan vafa um mögulegt vanhæfi einstakra fulltrúa í ráðinu. Nýtt þjóðleikhúsráð mun starfa frá 1. júlí nk., það mun meta hæfi umsækjenda og starfa með þjóðleikhússtjóra til næstu fjögurra ára.

Þjóðleikhúsráð er stjórnarnefnd Þjóðleikhússins skipað af mennta- og menningarmálaráðherra, í því sitja fimm fulltrúar, frá Félagi íslenskra leikara, Félagi leikstjóra á Íslandi og þrír án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi ráðsmanna.

Mennta- og menningarmálaráðherra þakkar fráfarandi þjóðleikhúsráði fyrir vel unnin störf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum