Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2018 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Heimagistingarvaktin skilar árangri: 80% fjölgun á skráðum heimagistingum

Johannes Jansson / Norden.org - mynd

Til að tryggja rétta skráningu og bæta eftirlit heimagistingar, var Heimagistingarvakt efld með sérstakri fjárveitingu ferðamálaráðherra síðasta sumar. Hún hefur nú þegar skilað árangri.

Heimagistingarvaktin er starfrækt á vegum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem hefur nú þegar samþykkt 1.860 skráningar á heimagistingu á þessu ári en á öllu síðasta ári var fjöldinn 1.059. Frá miðjum september hefur Heimagistingarvaktin framkvæmt 136 vettvangsheimsóknir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og á Suðurnesjum í kjölfar upplýsinga sem fram hafa komið í ábendinga- og frumkvæðiseftirliti með óskráðri skammtímaleigu. Á þessum tíma hefur lögregla stöðvað starfsemi þriggja rekstrarleyfisskyldra gististaða á höfuðborgarsvæðinu og óskað hefur verið eftir lögreglurannsókn og eftir atvikum lokun á átta rekstrarleyfisskyldum gististöðum utan höfuðborgarsvæðisins. Þá hefur 18 málum verið formlega lokið með álagningu stjórnvaldssekta og tugir mála eru til meðferðar vegna brota á skráningarskyldu sem verður að óbreyttu lokið með stjórnvaldssektum. Heildarupphæð fyrirhugaðra og álagðra stjórnvaldssekta vegna umræddra mála nemur um 40 milljónum króna.

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra ferðamála: „Það er allra hagur að farið sé að lögum við útleigu heimagistingar og það er gleðilegt að átaksverkefni í heimagistingarvakt hefur nú þegar skilað tilætluðum árangri.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum