Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningur við Fisktækniskólann

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ólafur Jón Arnbjörnsson skólameistari Fisktækniskólans - mynd

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gengið frá samningi við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. Skólinn hefur starfað frá árinu 2010. Markmið hans er að stuðla að menntun fólks í sjávarútvegi og stuðla þannig að aukinni fagþekkingu og nýliðun í greininni.

Samningurinn er til fimm ára. Með honum er skólanum falið að annast kennslu sjávarútvegsgreina á staðfestum námsbrautum samkvæmt lögum um framhaldsskóla. Ráðgert er að skólinn haldi áfram að þróa námskosti á því sviði. Um 160 nemendur stunda nám við skólann. Kennslan fer að mestu fram í Grindavík en skólinn er einnig með aðstöðu í Garðabæ, Reykjavík og á Bíldudal. Á fjórða hundrað nemenda hafa lokið námi af skilgreindum brautum skólans, þar af um eitt hundrað frá samstarfsskólum og fræðsluaðilum á Sauðárkróki, Tröllaskaga, Dalvík, Akureyri og Höfn í Hornafirði.

„Sjávarútvegurinn er ein af undirstöðu atvinnugreinum okkar Íslendinga og á vettvangi Fisktækniskólans er sannarlega verið að skapa verðmæti til framtíðar. Hér er vel búið að fjölbreyttum nemendahópi og við vonum að skólastarfið dafni vel til framtíðar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Heildarframlag ríkisins vegna samningsins nemur 355 milljónum kr. eða um 71 milljónum kr. á ári.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum