Hoppa yfir valmynd
18. október 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 371/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 18. október 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 371/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16070025

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 2. ágúst 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. júlí 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Litháens.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 17. maí 2016. Leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann sama dag, skilaði engum niðurstöðum. Þann 19. maí 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Litháen, sbr. 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem umsækjandi hafði vegabréfsáritun útgefna af litháískum yfirvöldum. Þann 12. júlí 2016 barst svar frá litháískum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 14. júlí 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Litháens. Kærandi kærði ákvörðunina þann 2. ágúst 2016 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 19. júlí 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 8. ágúst 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Litháens. Lagt var til grundvallar að Litháen virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Litháens ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Umsækjandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Litháens, sbr. d-lið 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 8. júní 2016 hafi kærandi sagst ekki vilja fara til Litháens þar sem hann telji sig ekki öruggan þar í landi þar sem þar ríki mikil spilling og auðvelt sé að koma inn í landið. Því sé kærandi mjög berskjaldaður fyrir þeim sem leiti hans og ofsæki. Í [...] hafi [...] sótt stíft að honum að ganga til liðs við samtökin og hótað honum lífláti yrði hann ekki við ósk þeirra þar sem með því væri hann að ganga gegn [...]. Hann vilji vera eins langt í burtu frá heimalandinu og mögulegt sé og engum detti í hug að leita hans á Íslandi.

Í greinargerð kæranda er að finna umfjöllun um ástand hælismála í Litháen og vitnað þar til ýmissa skýrslna, þ.á m. 2015 Country Reports on Human Rights – Lithuania (United States Department of State, apríl 2016). Í nóvember 2015 hafi fjárframlög til hælisleitenda og flóttamanna verið skorin niður um helming fyrstu sex mánuði dvalar þeirra í landinu. Stjórnvöld endursendi hælisleitendur samstundis til upprunalands komi þeir frá löndum sem séu álitin örugg og þá sé útlendingahatur og almennt umburðarleysi gríðarlegt vandamál í landinu. Eigi hælisleitendur sérstaklega undir högg að sækja í þeim efnum. Þá eigi hælisleitendur ekki rétt á að fara inn á atvinnumarkaðinn í Litháen. Að sama skapi séu hælisleitendur fluttir beint í varðhaldsmiðstöð, í kjölfar neikvæðrar lokaákvörðunar, þar sem þeir bíði brottflutnings. Jafnframt hafi Litháen aðeins eina móttökumiðstöð fyrir alla hælisleitendur og bjóði því ekki upp á sérstaka aðstöðu fyrir sérstaklega berskjaldaða einstaklinga eða möguleika á flutningi.

Jafnframt er í greinargerð kæranda vísað til skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Integration of Refugees in Lithuania – Participation and Empowerment, frá september 2014. Í skýrslunni sé m.a. greint frá viðtölum sem tekin hafi verið við 68 flóttamenn frá 12 löndum. Í greinargerð kæranda eru niðurstöður viðtalanna raktar og greint frá einstökum atburðum úr frásögnum flóttamannanna.

Í greinargerð kæranda er vísað til Dyflinnarreglugerðarinnar, d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Vísað er til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu. Samkvæmt 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga skuli m.a. taka umsókn til efnismeðferðar hér á landi þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. ákvæðisins ef sérstakar ástæður mæli með því. Fjallað er um athugasemdir við þessi ákvæði í frumvarpi til breytingarlaga nr. 115/2010, sem breyttu lögum um útlendinga, en þar segi að um einstaklingsbundna ákvörðun sé að ræða þannig að metið sé hvort varhugavert sé að senda tiltekinn hælisleitanda til annars ríkis samkvæmt ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar. Samsvarandi heimild sé að finna í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem fram komi að hverju aðildarríki sé heimilt að taka til meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd, sem ríkisborgari þriðja lands eða ríkisfangslaus einstaklingur leggi fram hjá því, jafnvel þótt það beri ekki ábyrgð á slíkri meðferð samkvæmt viðmiðunum Dyflinnarreglugerðarinnar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að litháísk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Litháens.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að endursending hælisleitenda til einstakra ríkja geti verið í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu vegna aðstæðna í viðkomandi móttökuríki. Við endursendingar innan Dyflinnarsamstafsins ber aðildarríkjum að leggja sjálfstætt mat á hvort meðferð hælisumsókna og móttaka og aðbúnaður hælisleitenda í móttökuríki sé í samræmi við ákvæði sáttmálans og þá að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Ber því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Litháen.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Litháen, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

· 2015 Country Reports on Human Rights Practices – Lithuania (United States Department of State, apríl 2016)

· Progress Report mid-2016. Beyond Detention: A Global Strategy to support governments to end the detention of asylum-seeker and refugees, 2014-2019 (UN High Commissioner for Refugees, ágúst 2016)

· Freedom in the World 2016 – Lithuania (Freedom House, ágúst 2016)

· The Organisation of Reception Facilities for Asylum Seekers in different Member States (European Migration Network, janúar 2014)

· Integration of refugees in Lithuania – Participation and Empowerment (United Nations High Commissioner for Refugees, september 2014)

Af framangreindum gögnum er ljóst tilskipanir Evrópusambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd voru innleiddar í litháískan rétt í lok síðasta árs. Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Litháen hefur ekki leitt í ljós að tilefni sé til að ætla að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Litháens brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Litháen bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Litháens á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Af þeim gögnum sem kærunefndin hefur kynnt sér má auk þess ráða að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda í Litháen óttist hann það fólk sem hann kveður að leiti hans og ofsæki eða að á honum verði brotið.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 8. júní 2016 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um fyrri hluta 2. mgr. 46. gr. a sem lítur að tengslum kæranda við Ísland. Aftur á móti er ekki vísað til seinni hluta ákvæðisins sem varðar sérstakar ástæður. Þá er eingöngu vísað til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laganna í lok ákvörðunarinnar. Kærunefnd telur skorta á að í rökstuðningi ákvörðunarinnar séu atvik heimfærð til viðeigandi ákvæða íslenskra laga, sbr. 1. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærunefnd hefur litið til þess að þrátt fyrir þennan annmarka fjallar ákvörðunin um þær ástæður sem gætu leitt til þess að mál yrði tekið til efnismeðferðar. Kærunefnd telur því að þessi ágalli sé ekki svo verulegur að vísa beri málinu til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun eins og hér stendur sérstaklega á.

Í máli þessu hafa litháísk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Litháens með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum