Hoppa yfir valmynd
14. ágúst 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 389/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 14. ágúst 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 389/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19070023, KNU19070024 og KNU19070025

Kæra […],

[…]

og […]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 10. júlí 2019 kærðu einstaklingar er kveðast heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir A), […], er kveðst vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir B) og […], er kveðst vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir C) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 24. júlí 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 6. mars 2019. Kærendur framvísuðu grískum dvalarleyfisskírteinum sem gáfu til kynna að A og C væru með gilt dvalarleyfi þar í landi til 13. ágúst 2021 og að B væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 3. september 2021. Kærendur A og B komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 8. apríl 2019 og kærandi C, m.a. þann 12. apríl 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 24. júní 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 25. júní 2019 og kærðu kærendur ákvarðanirnar þann 10. júlí 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 19. júlí 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari upplýsingar og gögn frá Útlendingastofnun 25. og 29. júlí 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þær fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þær fluttar til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að A hafi, í viðtölum hjá Útlendingastofnun, lýst því að hún glími við margvíslega sjúkdóma þar á meðal […]. Hafi þessi veikindi mikil áhrif á daglegt líf hennar, […]. Í Grikklandi hafi A mætt fordómafullri framkomu af hendi lækna og hjúkrunarfólks á grundvelli kynþáttar og uppruna. Þá hafi A aðeins staðið til boða læknisþjónusta og húsnæði í Grikklandi fyrir hjálp félagasamtakanna Praxis og óljóst hvort það muni enn standa fjölskyldunni til boða þurfi þau að snúa þangað. Hafi A jafnframt lýst árás af hendi lögreglunnar sem hafi haft áhrif á líf hennar. Þá hafi A mótmælt því að verða send aftur til Grikklands vegna fordóma þar í landi og takmarkaðrar þjónustu. Fram kemur í greinargerð að B hafi, í viðtölum hjá Útlendingastofnun, lýst aðstæðum fjölskyldunnar í Grikklandi fyrst í flóttamannabúðum og síðar í húsnæði í kjallara á vegum Praxis. Hafi B lýst því að fjölskyldan hafi notið takmarkaðrar þjónustu frá grískum stjórnvöldum auk þess sem að fjölskyldan hafi upplifað fordóma þar í landi. Í greinargerð kærenda kemur einnig fram að C hafi, í viðtölum hjá Útlendingastofnun, lýst því að hún hafi glímt við eyrnaverk í Grikklandi og ekki fengið aðstoð vegna þess. Þá hafi fjölskyldan hvorki haft tækifæri til menntunar né atvinnu þar í landi.

Í greinargerð kærenda koma fram athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í hinu kærðu ákvörðunum og vísa kærendur til gagna um aðstæður í Grikklandi sem þær kveði að styðji þær. Í fyrsta lagi geri kærendur athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að þeim hafi staðið til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi. Kærendur kveði að A hafi einungis staðið til boða lífsnauðsynleg heilbrigðisþjónusta í Grikklandi vegna alvarlegra líkamlegra veikinda hennar í árslok 2017 en hún hafi sótt um alþjóðlega vernd þann 12. október 2016. Þannig telji kærendur að A sé í raun útilokuð frá nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar í landi nema að hún fái utanaðkomandi aðstoð og að meðferð sem henni sé aðgengileg hér á landi verði það ekki í Grikklandi. Þá geri kærendur í öðru lagi athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að þær eigi rétt til aðgengis að félagslega kerfinu í Grikklandi. Kærendur hafni því mati og kveði að sú takmarkaða framfærsla sem þeim hafi staðið til boða í Grikklandi hafi ekki dugað til. Þá geri kærendur í þriðja lagi athugasemd við, að þrátt fyrir að Útlendingastofnun hafi fallist á rök þeirra um að þeim hafi ekki staðið til boða atvinna í Grikklandi, hafi það verið mat stofnunarinnar að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þær hafi verið útilokaðar frá þeim atvinnuréttindum sem felist í dvalarleyfi þeirra. Kærendur telji að ómögulegt muni verða fyrir þær að fá atvinnu í Grikklandi, m.a. vegna þeirra alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart þeim sem ekki tali grísku og vegna fordóma grísks samfélags. Í fjórða lagi geri kærendur athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að þær eigi rétt á aðgengi að húsnæði í Grikklandi. Telji kærendur að þær muni að öllum líkindum þurfa að hafast við á götunni í Grikklandi verði þeim gert að snúa aftur þangað eða treysta alfarið á tekjur sínar frá heimaríki. Þá geri kærendur að lokum athugasemd við mat Útlendingastofnunar á fordómum í Grikklandi sem þær telji vera í andstöðu við gögn um aðstæður þar í landi. Þá er í greinargerð kærenda vísað til greinargerðar þeirra hjá Útlendingastofnun varðandi umfjöllun um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi.

Kröfu sína um efnismeðferð byggja kærendur í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem þær njóti verndar 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærendur kveði að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement þar sem lagt sé bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Með 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi verið áréttaður sá vilji löggjafans að við möguleg brot gegn grundvallarreglunni með endursendingu til annars Evrópuríkis skuli taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærendur telji að túlkun íslenskra stjórnvalda á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. framangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Kærendur vísi til nánar tilgreinda dóma Mannréttindadómstólsins, máli sínu til stuðnings, og telji að við endursendingu þeirra til Grikklands muni íslensk stjórnvöld gerast brotleg við grundvallarregluna um non-refoulement. Telji kærendur að við endursendingu til Grikklands muni lífsgæði þeirra ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör þeirra ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Kærendur kveði að þörf þeirra fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og að fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Telji kærendur því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggja kærendur í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísa í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd. Kærendur telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar séu að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá vísi kærendur til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og kveði að stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, um að tryggja beri mannúðlega meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi, hafni kærendur því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá bendi kærendur á að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærendur telji ljóst að með vísan til heilsufarsgagna sé A einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá telji kærendur að þær muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart flóttafólki. Kærendur kveði að verði þær sendar til Grikklands muni staða þeirra verða verulega síðri en staða almennings þar í landi í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá vísi kærendur til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar en með endursendingu kærenda til Grikklands væri sonur A, bróðir B og C, sem hlotið hefur viðbótarvernd hér á landi, aðskilinn frá fjölskyldunni. Telji kærendur því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál þeirra til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að lokum byggja kærendur kröfu sína um efnismeðferð á því að þær hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur bendi á að öll fjölskylda þeirra sé stödd hér á landi, þar á meðal einn sonur A, bróðir B og C, en honum hafi verið veitt alþjóðleg vernd hér á landi […]. Kærendur telji að í ljósi meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar, sem m.a. megi finna í lögum um útlendinga, beri að gæta þess að sundra fjölskyldunni ekki enda muni það vera sérstaklega þungbært í ljósi þess hve samrýmd og náin þau séu. Kærendur eigi ættingja á Íslandi en ekki í Grikklandi og því hafi þær sérstök tengsl við landið þannig að taka beri umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kærendum veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Þá hafa A og C gilt dvalarleyfi þar í landi til 13. ágúst 2021 og B gilt dvalarleyfi til 3. september 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi A, […] sem á fimm uppkomin börn. Eru börn hennar stödd hér á landi, þ. á m. kærendur B og C sem eru dætur hennar. Í gögnum um heilsufar A kemur fram að hún sé almennt við ágæta andlega heilsu. Hvað líkamlega heilsu A varðar kemur fram í heilsufarsgögnum að hún glími m.a. við […]. […]. Það var mat Útlendingastofnunar, í hinni kærðu ákvörðun, að A væri einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Að mati kærunefndar er ljóst, með vísan til fyrirliggjandi heilsufarsgagna, að veikindi kæranda séu þess eðlis að hún hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt gögnum málsins eru systurnar B og C, […]. Í gögnum um heilsufar B og C kemur fram að þær séu almennt við ágæta andlega heilsu og hafi fengið meðferð við minniháttar líkamlegum heilsufarskvillum. Að mati kærunefndar er ljóst, m.a. með vísan til fyrirliggjandi heilsufarsgagna, að veikindi kærenda B og C séu ekki þess eðlis að þær hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 21. júní 2019);
  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database að dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd í Grikklandi séu gefin út til þriggja ára í senn. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis þurfi að berast 30 dögum áður en að leyfið renni út en ef umsókn berist eftir þann tíma leiði það þó ekki eitt og sér til þess að umsókn sé synjað. Umsókn sé þá að jafnaði endurnýjuð. Við málsmeðferð umsókna um endurnýjun dvalarleyfis sé þó framkvæmd könnun á sakaferli sem geti leitt til þess að alþjóðleg vernd umsækjanda sé afturkölluð og honum í kjölfarið synjað um endurnýjun dvalarleyfis. Þá sé málsmeðferðartími umsókna um endurnýjun dvalarleyfis u.þ.b. tveir mánuðir en þó séu dæmi um að það tímabil geti lengst upp í sex mánuði, en á meðan umsókn sé í vinnslu fái umsækjendur sérstakt kort sem veiti þeim sömu réttindi og fylgi dvalarleyfinu útgefið til tveggja mánaða í senn.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Ennfremur, samkvæmt dómaframkvæmd sama dómstóls, er það einungis í afar sérstökum tilvikum sem flutningur veikra einstaklinga til annars ríkis nær alvarleikaþröskuldi 3. gr. sáttmálans, n.t.t. þegar sýnt hefur verið fram á að skortur á viðeigandi læknismeðferð í móttökuríki, eða skortur á aðgengi að slíkri meðferð, geri einstakling útsettan fyrir alvarlegri, hraðri og óafturkræfri hnignun á heilsufari sem leitt getur til mikillar þjáningar eða verulegrar skerðingar á lífslíkum, sbr. Paposhvili gegn Belgíu (mál nr. 41738/10) frá 13. desember 2016.

Kærunefnd tekur ekki undir þá málsástæðu kærenda að sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu þeirra til Grikklands. Þá fellst nefndin ekki á að lífskjör kærenda í Grikklandi séu lífshættuleg, líkt og haldið er fram í greinargerð, eða að öðru leyti þess eðlis að flutningur þeirra til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þær verði ekki sendar áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda. Hafa kærendur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í málum þeirra þar sem þær verði fyrir mismunun í Grikklandi og staða þeirra þar sé verulega síðri en almennings. Skortur sé á atvinnu, húsnæði, viðhlítandi heilbrigðisþjónustu og annarri félagslegri þjónustu, þeim til handa í Grikklandi. Kærendur hafi þá einnig borið fyrir sig að hafa orðið fyrir fordómum í Grikklandi og upplifi þær sig ekki öruggar þar í landi.

Þrátt fyrir aðgangshindranir sem lýst hefur verið hér að framan hafa kærendur heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og eiga rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Samkvæmt framburði kærenda nutu þær aðstoðar í Grikklandi frá frjálsum félagasamtökum í formi mánaðarlegra greiðslna áður en þær yfirgáfu landið auk þess sem þær fengu úthlutað húsnæði á vegum frjálsra félagasamtaka þar í landi. Kærendur hafa jafnframt borið að þær hafi fengið tekjur frá heimaríki sem þær noti til framfærslu fjölskyldunnar. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði þær fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt í Grikklandi geti þær leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þær geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Svo sem áður hefur komið fram þá glímir kærandi A, m.a við […]. Hefur kærandi notið þeirrar meðferðar hér á landi auk þess sem hún hefur fengið ávísað lyfjum vegna þess. Meðal gagna málsins eru heilsufarsgögn frá Grikklandi þar sem fram kemur m.a. að kærandi A hafi hafið […] meðferð í Grikklandi í desember 2017. […]. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að hún hafi notið þeirrar heilbrigðisþjónustu allt þar til hún yfirgaf landið og kom hingað til lands í mars sl.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að A glími við alvarleg veikindi og hafi þörf fyrir læknismeðferð sem ekki má rjúfa. Aftur á móti er ljóst af framburði kærenda um fyrri læknismeðferð svo og af skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér, að kærandi á rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum í Grikklandi. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að […] meðferð sem A hefur þörf fyrir sé til staðar í Grikklandi og aðgengileg henni, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá hefur áður verið rakið að B og C séu almennt við góða líkamlega og andlega heilsu. Að mati nefndarinnar eru ekki fyrir hendi ástæður í málum kærenda er varðar heilsufar þeirra sem eru svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli A þar sem fram kemur að stofnunin muni miðla nauðsynlegum heilsufarsupplýsingum til Grikklands áður en til flutnings kemur svo að tryggt verði að kæranda bíði viðunandi aðstoð við komuna þangað.

Í málinu byggja kærendur á því að taka eigi umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi á þeim grundvelli að þær hafi slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að þær fái hér vernd, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi vísa kærendur einkum til þess að þær eigi tvö börn og systkin hér á landi. Líkt og að framan greinir var syni A, bróður B og C, veitt viðbótarvernd hér á landi […], sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl skv. 2. mgr. 36. gr. skuli túlkað í framkvæmd. Við túlkun ákvæðisins telur kærunefnd að líta verði til athugasemda sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þannig verði að leggja til grundvallar að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilfella þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari við Ísland en við viðtökuríki, svo sem vegna fyrri dvalar. Þá gera athugasemdirnar í frumvarpi og ákvæði 32. gr. b reglugerðar um útlendinga ráð fyrir því að fyrri dvöl umsækjanda hér á landi geti leitt til þess að um sérstök tengsl sé að ræða. Samkvæmt framansögðu getur komið til skoðunar hvort kærandi hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þegar hann á ættingja hér á landi. Kærunefnd telur að leggja skuli til grundvallar að ef umsækjandi um alþjóðlega vernd á sannanlega ættingja hér á landi, sem hefur heimild til dvalar hér, sem hann hefur raunveruleg og sérstök tengsl við hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsóknir hans verið tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið.

Kærandi A kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun eiga uppkomin börn hér á landi, systkini B og C en þau eru einnig umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þá hefur syni A, bróður B og C verið veitt viðbótarvernd hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í málum kærenda kemur ekkert fram sem dregur í efa að tengsl kærenda við fjölskyldu þeirra séu raunveruleg og eðlileg fjölskyldutengsl. Í ákvörðun stofnunarinnar í málum kærenda var lagt til grundvallar að gera þyrfti þá kröfu að ættingi umsækjanda um alþjóðlega vernd þyrfti að hafa fasta búsetu hér á landi og þá þyrfti að vera fyrirséð að svo yrði um einhvern tíma svo að um sérstök tengsl við landið gæti verið að ræða í skilningi ákvæðisins. Ljóst er að ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda voru teknar áður en sonur A og bróðir B og C var veitt viðbótarvernd hér á landi. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd sig ekki hafa forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi A eigi son og kærendur B og C bróður með fasta búsetu hér á landi enda liggja ekki fyrir gögn í málinu sem benda til annars. Þá er ekkert sem bendir til annars en að tengsl kærenda við fjölskyldu sína séu sterk. Kærunefnd telur því að kærendur hafi tengsl við landið í gegnum ættingja sem hefur leyfi til dvalar hér á landi.

Líkt og að framan greinir kemur fram í athugasemdum sem fylgdu 36. gr. frumvarps til laga um útlendinga að sérstök tengsl geti átt við þau tilfelli þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hér á landi á ættingja hér á landi en ekki í viðtökuríki og í þeim tilfellum þar sem tengsl eru ríkari við Ísland en við viðtökuríki, svo sem vegna fyrri dvalar. Fyrir liggur að kærendum hefur verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hafa þær dvalið þar í þrjú ár. Þá benda gögn málsins til þess að tveimur börnum A, sem eru systkin B og C, hafi jafnframt verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hafa þau dvalið öll saman þar í landi undanfarin ár. Er því ljóst að A, B og C, ásamt tveimur börnum A, hafa dvalið í Grikklandi lengur en á Íslandi auk þess sem þau hafa heimild til dvalar þar en ekki hér á landi. Er það mat kærunefndar að gögn málsins verði ekki túlkuð á annan veg en svo að tengsl þeirra við Grikkland séu ríkari en tengsl þeirra við Ísland. Af öllu framangreindu röktu er það niðurstaða kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slík sérstök tengsl við Ísland að nærtækast sé að kærendur fái hér vernd í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þær sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þær lögðu fram umsóknir sínar þann 6. mars 2019.

Frávísun

Kærendur komu hingað til lands þann 5. mars 2019 og sóttu um alþjóðlega vernd þann 6. mars 2019. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þær því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þær verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Anna Tryggvadóttir                                                                               Árni Helgason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum