Hoppa yfir valmynd
3. júní 2022 Dómsmálaráðuneytið

Guðbjarni Eggertsson settur ríkissaksóknari í máli Erlu Bolladóttur

Guðbjarni Eggertsson, hæstaréttarlögmaður hefur verið settur ríkissaksóknari til að veita endurupptökudómi umsögn í máli nr. 8/2022 vegna beiðni Erlu Bolladóttur til endurupptöku á dómi Hæstaréttar í máli nr. 214/1974.

Dómsmálaráðuneyti barst erindi ríkissaksóknara, Sigríðar Friðjónsdóttur, í apríl, um vanhæfi hennar en hún hafði einnig verið vanhæf í máli endurupptökunefndar nr. 7/2014 sem átti rætur að rekja til sama máls. Þær vanhæfisástæður sem lágu þá til grundvallar eru enn til staðar og koma einnig í veg fyrir aðkomu hennar að máli þessu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum