Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2023 Innviðaráðuneytið

Mál nr. 101/2022

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 28. apríl 2023

í máli nr. 101/2022

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Víðir Smári Petersen dósent og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að greiða 420.000 kr. í bætur vegna skemmda sem hafi orðið á hinu leigða á leigutíma.

Með kæru, dags. 10. október 2022, beindi sóknaraðili til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við varnaraðila. Með bréfi kærunefndar, dags. 27. febrúar 2022, var varnaraðila gefinn kostur á að tjá sig um efni kærunnar. Beiðni um greinargerð varnaraðila var ítrekuð með bréfi kærunefndar, dags. 27. febrúar 2023. Engin viðbrögð bárust frá varnaraðila.

Með tölvupósti 20. mars 2023 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá sóknaraðila. Þar sem engin svör bárust ítrekaði nefndin beiðni sína með lokafresti og upplýsti að málið yrði tekið til úrlausnar að þeim tíma liðnum á grundvelli þeirra gagna sem þegar lægju fyrir. Engin svör bárust.

 

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. júní 2022 til 31. september 2022 um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að C. Ágreiningur er um kröfu sóknaraðila í tryggingu varnaraðila vegna skemmda sem hún kveður að hafi orðið á hinu leigða á leigutíma.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður varnaraðila hafa átt að skila íbúðinni eins og hún hafi fengið hana við upphaf leigutíma. Skilin hafi aftur á móti verið óásættanleg.

Farið sé fram á að varnaraðili greiði 420.000 kr. í bætur eins og kveðið hafi verið á um í samningi aðila yrði íbúðinni skilað í óviðunandi ástandi.

Salernið hafi verið mjög illa farið, sérstaklega vaskurinn. Veggirnir hafi verið óhreinir og fullt af götum á þeim. Þá hafi gluggatjöld verið skemmd.

III. Niðurstaða            

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir kærunefnd og verður því úrlausn málsins byggð á þeim gögnum og sjónarmiðum sem sóknaraðili hefur lagt fyrir nefndina.

Krafa sóknaraðila í tryggingu varnaraðila byggir bæði á því að ýmsar skemmdir hafi orðið á hinu leigða á leigutíma sem og að þrifum hafi verið ábótavant. Með kærunni fylgdi leigusamningur og ódagsettar ljósmyndir.

Í 7. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, segir að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingu eða ábyrgð samkvæmt 1.-3. og 6. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Í 8. mgr. sömu greinar segir að geri leigusali kröfu í tryggingu eða ábyrgð innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðisins samkvæmt 7. mgr., skuli leigjandi tilkynna leigusala skriflega hvort hann hafni eða fallist á kröfuna innan fjögurra vikna frá móttöku kröfunnar. Hafni leigjandi kröfu leigusala beri leigusala að vísa ágreiningi um bótaskyldu leigjanda til kærunefndar húsamála eða höfða mál um bótaskyldu leigjanda innan fjögurra vikna frá þeim degi er leigjandi hafnaði kröfunni, ella fellur trygging eða ábyrgð úr gildi.

Þar sem framangreint lagaákvæði gerir ráð fyrir tiltekinni málsmeðferð og tímafrestum vegna krafna leigusala í tryggingar leigjenda óskaði kærunefnd eftir því að sóknaraðili upplýsti hvenær krafa hafi verið gerð í trygginguna og hver viðbrögð varnaraðila hafi verið. Einnig óskaði nefndin eftir svörum við því hvort aðilar hafi gert sameiginlegar úttektir við upphaf og lok leigutíma. Engin viðbrögð bárust frá sóknaraðila, þrátt fyrir ítrekaða beiðni kærunefndar þar um. Þar sem skortur er á upplýsingum frá sóknaraðila sem hafa grundvallarþýðingu við mat á því hvort ákvæði 7. og 8. mgr. 40. gr. húsaleigulaga hafi verið fylgt er nefndinni ómögulegt að taka kröfur sóknaraðila til úrlausnar. Málinu er því vísað frá kærunefnd.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður var kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kröfu sóknaraðila er vísað frá.

 

Reykjavík, 28. apríl 2023

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

Víðir Smári Petersen                                     Eyþór Rafn Þórhallsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum