Hoppa yfir valmynd
7. október 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

FSRE aflar húsnæðis fyrir 1.600 manns á flótta

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) hefur undanfarna mánuði útvegað húsnæði fyrir um 1.600 manns á flótta og hafa flestir þeirra komið frá Úkraínu.

Síðustu mánuði hefur fjöldi flóttafólks á Íslandi margfaldast. Þetta hefur kallað á skjót viðbrögð við öflun húsnæðis. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fól í mars sl. FSRE að aðstoða félags- og vinnumarkaðsráðuneytið við að útvega húsnæði fyrir flóttafólk. Frá þeim tíma er á vegum ríkisins búið að afla 20 staða fyrir flóttafólkið sem fengið hefur húsnæði í gistiheimilum og í íbúðum. Til staðar eru gistirými fyrir 1.200 manns í svokölluðu fyrsta úrræði, þar sem gert er ráð fyrir að fólk dvelji í að hámarki átta vikur.

Frá 9. september sl. hafa 450 flóttamenn komið til landsins, sem er mikil aukning frá sumarmánuðum. Aðeins 67 hafa flust úr fyrsta úrræði á sama tíma. Þörf var á að grípa strax til aðgerða við að útvega fólkinu gistingu. Í vikunni óskuðu stjórnvöld eftir því að Rauði krossinn myndi opna fjöldahjálparstöð og brást FSRE hratt við. Tókst á einum sólarhring að útbúa skrifstofuhúsnæði á vegum ríkisins í Borgartúni með þeim hætti að unnt að væri að taka á móti fólki til skammtímadvalar. Verkefnið var unnið í góðu samstarfi fjölda aðila og stóðst húsnæðið úttekt eftirlitsaðila sl. miðvikudag.

FSRE leitar áfram að húsnæði sem hentar sem fyrsta úrræði fyrir flóttafólk. Nánari upplýsingar má sjá í auglýsingu á vef stofnunarinnar.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum