Hoppa yfir valmynd
1. október 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 320/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 1. október 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 320/2020

Í stjórnsýslumáli nr. KNU20080005

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

Þann 10. ágúst 2020 barst kærunefnd útlendingamála kæra [...], kt. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. júní 2020, um að synja umsókn hans um ferðaskilríki fyrir flóttamenn.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 15. júlí 2020. Þann 10. ágúst sl. barst kærunefnd kæra kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar en kæran mun hafa verið póstlögð þann 6. ágúst sl. Er samkvæmt framansögðu ljóst að kærufresturinn, sem var til 30. júlí 2020, var liðinn þegar kæran var póstlögð.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var kæranda, með tölvupósti kærunefndar, dags. 24. september 2020, veitt tækifæri til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Af svari lögmanns kæranda, dags. 24. september sl., má ráða að gleymst hafi að senda kæruna í tölvupósti til kærunefndar þann 30. júlí 2020 líkt og til hafi staðið.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér geti t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Ákvörðun Útlendingastofnunar var send til kæranda með ábyrgðarpósti þann 8. júlí 2020 og var afhending bókuð þann 15. júlí 2020. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Líkt og áður hefur komið fram var kæra kæranda ekki póstlögð til kærunefndar fyrr en þann 6. ágúst 2020 en 15 daga kærufrestur rann út þann 30. júlí 2020 sé miðað við þann dag sem ákvörðunin var móttekin af kæranda. Í skýringum kæranda á því hvers vegna kæra barst of seint, dags 24. september sl., kveður lögmaður kæranda að gleymst hafi að senda kæruna á tölvupósti til kærunefndar þann 30. júlí 2020 líkt og til hafi staðið. Er það mat kærunefndar að uppgefnar ástæður þess að kæra hafi borist eftir kærufrest séu ekki þess eðlis að afsakanlegt verði talið að kæra hafi ekki borist fyrr. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda, þau lagasjónarmið sem að baki liggja, þau alvarlegu brot sem synjunin byggir á, og litið til þeirra mála sem kærandi á ólokin í refsivörslukerfinu. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, m.a. þar sem kærandi getur á auðveldan hátt sótt aftur um útgáfu ferðaskilríkis.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

Úrskurðarorð

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

The Immigration Appeals Board dismisses the applicant appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum