Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Undirritun samnings við Fjarðabyggð um móttöku flóttafólks

Við undirritun samningsins  - myndVelferðarráðuneytið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, undirrituðu í dag samning um móttöku fjögurra flóttafjölskyldna frá Írak sem væntanlegar eru til landsins og munu setjast að í sveitarfélaginu.

Undirbúningur að móttöku fólksins hefur staðið yfir um nokkurt skeið í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNCHR) og fór sendinefnd til Jórdaníu í nóvember síðstliðnum, meðal annars til að veita fólkinu fræðslu um Ísland, íslenskt samfélag og réttindi og skyldur. Þetta er í annað sinn sem Fjarðabyggð tekur á móti flóttafólki en árið 1999 tók sveitarfélagið á móti hópi flóttafólks frá Kosovo.

Sveitarfélagið hefur undirbúið móttöku fólksins í nánu samstarfi við velferðarráðuneytið og Rauða krossinn á Íslandi. Samningurinn sem undirritaður var í dag lýtur að móttöku, aðstoð og stuðningi við fjölskyldurnar fjórar á næstu tveimur árum. Alls eru þetta nítján einstaklingar, þar af 10 börn en tvö þeirra eru eldri en 18 ára. Samningurinn byggist á viðmiðunarreglum flóttamannanefndar þar sem staða flóttafólks og réttindi þeirra eru skilgreind, fjallað um um inntak aðstoðar við það fyrst eftir komuna til landsins og um kostnaðarskiptingu vegna þess milli ríkis og viðkomandi sveitarfélaga. Í grófum dráttum snúa verkefnin að því að tryggja fólki húsnæði, félagslega ráðgjöf, menntun og fræðslu, heilbrigðisþjónustu, aðstoð við atvinnuleit og fjárhagsaðstoð til framfærslu. Rauði krossinn kemur að móttöku fólksins þar sem hann útvegar fólkinu nauðsynlegt innbú á heimili þess og hefur umsjón með stuðningsfjölskyldum sem ætlað er að liðsinna flóttafólkinu við aðlögun að íslensku samfélagi.

Ásmundur Einar, félags- og jafnréttismálaráðherra, sagði við undirritun samningsins í dag að hann væri þakklátur Fjarðabyggð fyrir vandaðan undirbúning að mikilvægu verkefni: „Það er mikið í húfi að vel sé tekið á móti þessu fólki sem svo margt hefur reynt og þolað, að það finni sig velkomið og fái sem bestan stuðning til að fóta sig í samfélaginu og öðlast gott líf hér á landi.“

Auk fjölskyldnanna sem væntanlegar eru til Fjarðabyggðar er von á 33 einstaklingum til landsins sem koma hingað í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Fyrir liggja drög að samningi við Mosfellsbæ um móttöku tíu manna hóps flóttafólks frá Úganda og drög að samningi við Ísafjarðarbæ í samstarfi við Súðavíkurhrepp og Bolungarvíkurkaupstað vegna móttöku 23 eintaklinga frá Sýrlandi og Írak.

Flóttafólkið sem væntanlegt er til landsins á það sammerkt að vera arabískumælandi og statt í Jórdaníu. Urðu íslensk stjórnvöld með því við beiðni Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna þess efnis. Samkvæmt stofnuninni hafa um 750.000 flóttamenn komið á síðustu árum til Jórdaníu þar sem fyrir er fjöldi flóttafólks frá Palestínu. Miðað við höfðatölu eru næstflestir flóttamenn í heiminum staðsettir í Jórdaníu eða um 89 manns á hverja 1000 Jórdani. Þá kemur fram hjá Flóttamannastofnun SÞ að 93% flóttamanna búa undir fátækramörkunum.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum