Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2019 Utanríkisráðuneytið

Íslendingur til Albaníu að samræma björgunaraðgerðir

GENT SHKULLAKU/GETTY - mynd

Sólveig Þorvaldsdóttir byggingaverkfræðingur er komin til Albaníu á veg­um Sam­einuðu þjóðanna, þar sem hún tek­ur þátt í því að skipu­leggja og sam­ræma björg­un­araðgerðir vegna jarðskjálftans aðfaranótt þriðjudags. Hún er send á vettvang á grundvelli samninga utanríkisráðuneytisins við Samræmingarskrifstofu aðgerða SÞ í mannúðarmálum (OCHA) og við Slysavarnarfélagið Landsbjörg sem hún er félagi í.

Tæplega fimmtíu manns hefur verið bjargað úr rústum húsa eftir jarðskjálftann sem mældist 6,4 á Richterskala og olli mestu tjóni í strandbænum Durres og þorpinu Thumane þar sem lýst hefur verið yfir þrjátíu daga neyðarástandi.

Edi Rama frosætisráðherra lýsti yfir eins dags þjóðarsorg í morgun í Albaníu. Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur 48 einstaklingum verið bjargað úr rústum húsa en 28 hafa fundist látnir. Mörg hundruð íbúar eru slasaðir og sveitir frá her, lögreglu og hjálparsamtökum berjast í kapp við tímann að finna fleira fólk á lífi í húsarústum. Alls eru um 200 sérfræðingar komnir til Albaníu til að taka þátt í björgunarstarfi og leita með aðstoð hunda daga og nætur.

Þúsundir íbúa dvöldu næturlangt í tjöldum eða á bersvæði á fótboltaleikvangi Durres þar sem 27 hús hrundu að mestu leyti í skjálftanum. Margir óttast að snúa heim því eftirskjálftar hafa verið um þrjú hundruð talsins og hafa fundist víða á Balkanskaganum. Hátíðahöldum vegna þjóðhátíðadags Albaníu á morgun, 28. nóvember, hefur verið aflýst.

Sólveig Þorvaldsdóttir hefur langa reynslu af því að starfa á neyðarvettvangi og í rústabjörgunarsveitum á Íslandi og erlendis. Hún er annar tveggja sérfræðinga sem óskað var eftir að færi af hálfu UNDAC til hamfarasvæðanna í Albaníu. UNDAC er alþjóðlegt viðbragðsteymi vegna neyðarástands á vegum OCHA sem er ein af lykilstofnunum utanríkisráðuneytisins í mannúðarmálum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
6. Hreint vatn og hreint

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum