Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2009 Innviðaráðuneytið

Uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða

Í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, er við hækkun á tekju- og eignamörkum miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu. Í reglugerðinni er miðað við árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar ár hvert og kveðið á um að félags- og tryggingamálaráðherra skuli láta reikna viðmiðunarfjárhæðirnar í upphafi hvers árs og birta nýjar fjárhæðir.

Við útreikning á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá ársbyrjun 2008 til ársbyrjun 2009. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands nemur hækkunin 18,13%.

Frá og með 1. janúar 2009 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, eftirfarandi:

  • Tekjur fyrir einstakling 3.358.000 krónur.
  • Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu 562.000 krónur.
  • Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 4.702.000 krónur.
  • Eignamörk verða 3.625.000 krónur.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum