Hoppa yfir valmynd
21. desember 2017 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar til júní 2017

Þriðjudaginn 13. desember 2016 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2017.

 

Samtals bárust þrettán umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og  alifuglakjöti, unnum kjötvörum, ostum og eggjum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

 

Samtals bárust ellefu gild tilboð í tollkvótann.

 

Sex tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 127.500 kg á meðalverðinu 136 kr./kg.  Hæsta boð var 300 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 47.500 kg á meðalverðinu 238 kr./kg.

 

Þrjú tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 45.000 kg á meðalverðinu 34 kr./kg.  Hæsta boð var 70 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 32.000 kg á meðalverðinu 47 kr./kg.

 

Tvær umsóknir bárust um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 45.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 172.500 kg.

 

Sjö tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 149.500 kg á meðalverðinu 273 kr./kg.  Hæsta boð var 600 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 29.500 kg á meðalverðinu 397 kr./kg.

 

Þrjár umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 18.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 26.500 kg.

 

Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 181.200 kg á meðalverðinu 172 kr./kg.  Hæsta boð var 450 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 59.500 kg á meðalverðinu 356 kr./kg.

 

Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 56.000 kg á meðalverðinu 31 kr./kg.  Hæsta boð var 100 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 38.000 kg á meðalverðinu 40 kr./kg.

 

Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 161.000 kg. á meðalverðinu 148 kr./kg. Hæsta boð var 690 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 43.000 kg á meðalverðinu 609 kr./kg.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Nautgripakjöt fyrir tímabilið janúar - júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

42.500

Kjötmarkaðurinn ehf

5.000

Ölgerðin ehf

 

Svínakjöt fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

4.364

Íslenskar matvörur ehf.

20.000

Kjötmarkaðurinn ehf

7.636

Krónan hf

 

Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

40.000

Íslenskar matvörur ehf

5.000

Sælkeradreifing ehf

 

 

 

 

Alifuglakjöt fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

22.500

Innnes ehf

7.000

Garri ehf

 

Smjör fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Íslenskar matvörur ehf

5.000

Krónan hf.

8.000

Nautica ehf

 

Ostur fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

18.000

Aðföng hf

2.800

Garri ehf

700

Innnes ehf

10.000

Íslenskar matvörur ehf

4.000

Krónan hf

15.000

Mjólkursamsalan ehf

9.000

Parlogis ehf

 

Fuglsegg fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

31.000

Nautica ehf.

7.000

Sælkeradreifing ehf

 

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

3.000

Innnes ehf

3.000

Nautica ehf

10.000

Parlogis ehf

27.000

Sælkeradreifing ehf

 

Reykjavík, 21. desember 2016

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum