Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 395/2019 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 395/2019

Miðvikudaginn 22. janúar 2020

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Ásmundur Helgason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 20. september 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. september 2019 um greiðslu barnalífeyris vegna náms.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, móttekinni af Tryggingastofnun þann 5. september 2019, sótti kærandi um greiðslu barnalífeyris vegna náms. Með bréfi, dags. 12. september 2019, synjaði stofnunin kæranda um barnalífeyri vegna náms á þeim grundvelli að eignir hennar væru yfir viðmiðunarmörkum 6. gr. reglugerðar nr. 140/2006. Þá barst Tryggingastofnun skjal frá kæranda þar sem fram kom hvernig eignirnar væru til komnar. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 19. september 2019, var kæranda tilkynnt að stofnunin hefði farið yfir skjalið og fyrri ákvörðun stofnunarinnar um synjun á greiðslum stæði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 20. september 2019. Með bréfi, dags. 23. september 2019, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst með bréfi, dags. 7. október 2019. Með bréfi, dags. 8. október 2019, var greinargerð Tryggingastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að fallist verði á greiðslu barnalífeyris vegna náms.

Í kæru segir að krafan sé að fá barnalífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins vegna áframhaldandi náms vegna örorku föður kæranda. Umsókn kæranda hafi verið synjað vegna slysabóta sem séu yfir viðmiðunarmörkum. Kærandi fari fram á að slysabæturnar verði ekki taldar fram í þessu máli þar sem þær séu vegna slyss en ekki vegna vinnu og kærandi noti þær ekki sér til framfærslu. Kærandi telji sig eiga rétt á framfærslu frá Tryggingastofnun ríkisins svo að hún geti haldið áfram námi án þess að skerða slysabætur sínar.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærð sé synjun barnalífeyris vegna náms.

Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 12. september 2019, hafi kæranda verið synjað um greiðslu barnalífeyris vegna náms þar sem eignir kæranda í peningum eða verðbréfum væru hærri en 4 milljónir króna. Tryggingastofnun hafi borist upplýsingar um hvernig eignin væri tilkomin og hafi kæranda verið svarað með bréfi, dags. 19. september 2019.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð sé Tryggingastofnun heimilt að greiða barnalífeyri vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18-20 ára ef annað foreldri eða báðir foreldrar séu látnir, enn fremur ef foreldrar séu ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar, annað eða báðir. Tryggingastofnun meti sönnun um skólavist og starfsþjálfun. Skilyrði sé að námið og þjálfunin taki að minnsta kosti sex mánuði hvert ár.

Í 2. gr. reglugerðar nr. 140/2006 um heimild Tryggingastofnunar ríkisins til að greiða barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar ungmenna á aldrinum 18-20 ára, segi að Tryggingastofnun meti sönnun um skólavist og starfsþjálfun og skuli ungmenni framvísa staðfestum gögnum frá skóla ásamt yfirliti yfir fyrri námsárangur í upphafi hverrar annar.  Skilyrði sé að ungmenni stundi sannanlega nám og að námið eða þjálfunin taki að minnsta kosti sex mánuði hvert ár.

Í 6. gr. reglugerðarinnar segi að við mat á umsókn skuli Tryggingastofnun taka tillit til allra aðstæðna umsækjanda, félagslegra sem efnahagslegra, sem áhrif geti haft á það hvort samþykkja skuli umsókn eða hafna henni.  Að jafnaði skuli miðað við að umsækjandi eigi ekki eignir í peningum eða verðbréfum yfir þeim viðmiðunarmörkum sem notuð séu hverju sinni varðandi heimild til greiðslu frekari uppbótar á lífeyri.

Reglugerð nr. [1200/2018] fjalli um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri. Í [11.] gr. reglugerðarinnar segi að uppbætur á lífeyri skuli aldrei greiddar til lífeyrisþega sem eigi eignir í peningum eða verð­bréfum yfir 4.000.000 kr. Kærandi hafi sótt um greiðslu barnalífeyris vegna náms með rafrænni umsókn, móttekinni hjá Tryggingastofnun þann 5. september 2019. Samkvæmt skattframtali kæranda fyrir tekjuárið 2018 sé bankaeign kæranda í árslok 2018 að fjárhæð 7.263.471 kr. Með vísan til framangreindra reglugerða hafi kæranda verið synjað um barnalífeyri vegna náms fyrir haustönnina 2019.

Upplýsingar hafi borist um að umrædd inneign væri tilkomin vegna bóta vegna slyss. Ekki hafi borist upplýsingar um að kærandi ætti þessa inneign ekki lengur í banka. Þar sem engin heimild sé í lögum eða reglugerð til að gera greinarmun á því hvernig inneign sé tilkomin, hafi Tryggingastofnun enga heimild til að breyta ákvörðun sinni um synjun barnalífeyris vegna náms til kæranda vegna eigna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. september 2019, þar sem umsókn kæranda um barnalífeyri vegna náms var synjað vegna þess að kærandi átti eignir umfram viðmiðunarmörk, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 140/2006.

Um barnalífeyri vegna menntunar er fjallað í 3. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Í 1. málsl. 3. gr. laga um félagslega aðstoð er kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að greiða barnalífeyri vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18-20 ára ef annað foreldri eða báðir eru látnir, enn fremur ef foreldrar eru ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar, annað eða báðir. Þá segir í 10. málsl. 3. gr. laganna að við ákvörðun á rétti til barnalífeyris sé heimilt að líta til efnahags barns og annarra tekna sem það hafi. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að ráðherra setji reglugerð um nánari framkvæmd þess.

Reglugerð nr. 140/2006 um heimild Tryggingastofnunar ríkisins til að greiða barnalífeyri vegna náms eða starfsþjálfunar ungmenna á aldrinum 18-20 ára hefur verið sett með framangreindri lagaheimild. Í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar segir að við mat á umsókn skuli Tryggingastofnun taka tillit til allra aðstæðna umsækjanda, félagslegra sem efnahagslegra, sem áhrif geti haft á það hvort samþykkja skuli umsókn eða hafna henni. Samkvæmt 4. tölul. 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar skal að jafnaði miðað við að umsækjandi eigi ekki eignir í peningum eða verðbréfum yfir þeim viðmiðunarmörkum sem notuð séu hverju sinni varðandi heimild til greiðslu frekari uppbótar á lífeyri. Reglugerð nr. 1200/2018 um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri fjallar meðal annars um hámark uppbóta og tekju- og eignamörk. Í 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2018 segir:

„Uppbætur á lífeyri skulu aldrei greiddar til lífeyrisþega sem á eignir í peningum eða verð­bréfum yfir 4.000.000 kr. eða hefur heildartekjur yfir 2.929.579 kr. á ári.“

Samkvæmt framangreindu skal að jafnaði ekki greiða barnalífeyri vegna náms ef eignir umsækjanda eru yfir 4.000.000 kr. Við árslok 2018 voru eignir kæranda samkvæmt skattframtali að fjárhæð 7.263.471 kr. Eignir kæranda eru því yfir viðmiðunarmörkum samkvæmt framangreindum reglugerðarákvæðum.

Kærandi byggir á því að þar sem peningaeignn hennar sé slysabætur eigi ekki að taka mið af þessum eignum við mat á því hvort skilyrði séu uppfyllt til greiðslu barnalífeyris vegna náms. Bendir kærandi á að ekki sé um greiðslur vegna vinnu að ræða og að hún noti þennan pening ekki sér til framfærslu. Í 6. gr. reglugerðar nr. 140/2006 er ekki tekið fram hvernig eignir í peningum eru tilkomnar. Samkvæmt ákvæðinu er því ekki gerður greinarmunur á því hvort peningaeign sé tilkomin vegna atvinnutekna eða af öðrum ástæðum. Peningaeignin er verulega umfram þau mörk sem sett hafa verið. Ekki er því efni til að víkja frá umræddu skilyrði 6. gr. reglugerðarinnar. Tryggingastofnun ríkisins var því að mati úrskurðarnefndar velferðarmála heimilt að synja kæranda um greiðslu barnalífeyris vegna náms.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. september 2019, um synjun á umsókn kæranda um barnalífeyri vegna náms, staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um barnalífeyri vegna náms er staðfest.

 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum