Hoppa yfir valmynd
30. júní 2023 Matvælaráðuneytið

Hvalveiðar þurfa að vera í samræmi við lög

Langreyður í hafi. - myndiStock/JG1153

Matvælaráðuneytið hefur skilað minnisblaði til atvinnuveganefndar Alþingis í framhaldi opins fundar matvælaráðherra með nefndinni sem haldinn var 23. júní sl. Á fundinum gerði ráðherra grein fyrir ákvörðun sinni um tímabundna stöðvun á veiðum langreyða. Ráðherra setti 20. júní sl. bráðabirgðaákvæði við reglugerð um að hvalveiðar hefjist ekki fyrr en 1. september á þessu ári.

Í minnisblaðinu er farið yfir forsendur ákvörðunarinnar og kemur meðal annars fram að ákvörðunin sé tekin á skýrum lagagrundvelli og byggð á málefnalegum sjónarmiðum um dýravelferð. Til grundvallar liggi umfangsmikil og ítarleg gögn um velferð dýra við veiðar á langreyðum ásamt mati sérfræðinga og ráðuneytisins á þeim.

Tilefni bráðabirgðaákvæðisins er afdráttarlaus niðurstaða fagráðs um velferð dýra. Í áliti fagráðsins kemur fram að núverandi veiðiaðferðir á langreyðum uppfylli ekki kröfur um velferð dýra.

Í minnisblaðinu til atvinnuveganefndar er að auki lýst aðdraganda ákvörðunarinnar og greint frá þeirri yfirgripsmiklu úttekt sem gerð hefur verið á veiðunum á síðastliðnu ári. Að auki segir að ljóst sé að á öllum stigum hafi verið þess gætt að ganga ekki harðar fram en nauðsyn bæri til hverju sinni. Í minnisblaðinu segir jafnframt að ráðherra hafi ekki heimild til að leyfa starfsemi sem er í andstöðu við lög.

Minnisblað til atvinnuveganefndar má nálgast hér.

 

 

 


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum