Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 301/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 301/2022

Miðvikudaginn 17. ágúst 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 10. júní 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 18. mars 2022 um að samþykkja umsókn hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. febrúar 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn 24. febrúar 2022 sótti kærandi um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með syni sínum frá 12. febrúar 2020. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 18. mars 2022, var milliganga um meðlagsgreiðslur með barni hans samþykkt frá 1. febrúar 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. júní 2022. Með bréfi, dags. 13. júní 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 27. júní 2022, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er farið fram á að úrskurður um meðlagsgreiðslur verði endurskoðaður. Samkvæmt reglum eða heimild Tryggingastofnunar hafi kærandi fengið greitt meðlag eitt ár aftur í tímann. Dómsniðurstaða í forræðisdeilu sé skýr og hafi kæranda verið dæmdar meðlagsgreiðslur frá 12. febrúar 2020, eða frá þeim tíma að sonur kæranda hafi verið nauðungarvistaður á hans heimili og barnsmóðir svipt umráðarétti. Það hafi verið ógerningur fyrir kæranda að sækja rétt sinn til meðlagsgreiðslna á meðan á málaferlum hafi staðið.

Farið sé fram á að úrskurðarnefnd taki málið til ákvörðunar og að meðlagsgreiðslur miðist við dómsúrskurð, eða 12. febrúar 2020. Framfærsla og allur kostnaður hafi verðið greiddur af kæranda frá þeim tíma.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærður sé upphafstími á milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda, þ.e. frá 1. febrúar 2021, þar sem ekki sé heimilt að hafa milligöngu á meðlagi lengra en 12 mánuði aftur í tímann. Kærandi hafi óskað eftir greiðslum frá 12. febrúar 2020.

Í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé kveðið á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar. Þar segi að Tryggingastofnun sé skylt að greiða rétthafa greiðslna, samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Ákvæði 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar kveði á um það að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Í 4. mgr. sömu greinar segi síðan að Tryggingastofnun sé einungis heimilt að greiða meðlag aftur í tímann í allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni.

Í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar segi að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd greinarinnar. Það hafi verið gert með reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga. 

Í 7. gr. reglugerðarinnar í III. kafla segi að heimilt sé að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berist Tryggingastofnun, þ.e. umsókn og meðlagsákvörðun.

Kærandi hafi sótt um milligöngu Tryggingastofnunar á meðlagi með syni sínum með umsókn 24. febrúar 2022. Kærandi hafi óskað eftir greiðslum í samræmi við dóm B B, dags. 1. febrúar 2022, sem hafi borist á sama tíma. Í dóminum komi fram að barnsmóðir kæranda skuli greiða honum meðlag með syni þeirra frá 12. febrúar 2020 til 18 ára aldurs. 

Samkvæmt framangreindum laga- og reglugerðarákvæðum sé Tryggingastofnun einungis heimilt að hafa milligöngu um meðlag 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem nauðsynleg gögn, þ.e. umsókn og meðlagsákvörðun, berist Tryggingastofnun. Þar sem umsókn kæranda og dómur B hafi borist Tryggingastofnun í febrúar 2022 hafi stofnunin ekki heimild til að hafa milligöngu um greiðslu meðlagsins lengra aftur í tímann en frá 1. febrúar 2021. Vegna þessara skýlausu ákvæða hafi Tryggingastofnun ekki heimild til að breyta ákvörðun sinni um upphafstíma á milligöngu meðlagsgreiðslna frá 1. febrúar 2021.

Að gefnu tilefni beri að taka það fram að ákvörðun Tryggingastofnunar hafi engin áhrif á skyldu barnsmóður kæranda samkvæmt dóminum til að greiða kæranda meðlag frá 12. febrúar 2020 og fram að þeim tíma sem Tryggingastofnun hafi hafið milligöngu meðlagsins. Kærandi geti því sótt þær greiðslur samkvæmt almennum reglum úr hendi barnsmóður sinnar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 18. mars 2022 um upphafstíma milligöngu meðlagsgreiðslna til kæranda. Kærandi óskar eftir að fá milligöngu meðlagsgreiðslna frá 12. febrúar 2020.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laganna er Tryggingastofnun heimilt að greiða meðlag allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við. Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga hefur verið sett með stoð í 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar.

Af ákvæði 63. gr. laga um almannatryggingar leiðir að Tryggingastofnun ber að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur þegar beiðni berst frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Heimild Tryggingastofnunar til að greiða meðlag samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laganna er takmörkuð við 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem meðlagsákvörðun berst stofnuninni.

Samkvæmt dómi B, dags. 1. febrúar 2022, skal barnsmóðir kæranda greiða meðlag með syni þeirra frá 12. febrúar 2020 til 18 ára aldurs. Í kjölfar framangreinds dóms óskaði kærandi eftir greiðslum í samræmi við dómsorð. Milliganga Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur hefur verið samþykkt frá 1. febrúar 2021.

Tímabilið, sem kærandi fer fram á milligöngu meðlagsgreiðslna, er umfram þá 12 mánuði aftur í tímann sem heimilt er að greiða samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Það er mat úrskurðarnefndar velferðarmála að stofnuninni sé því ekki heimilt að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda á því tímabili sem kærandi óskar eftir, sbr. 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar. Engin heimild er í lögum til þess að greiða meðlag lengra en 12 mánuði aftur í tímann.

Úrskurðarnefndin telur rétt að benda kæranda á að hann geti freistað þess að sækja greiðslu meðlags úr hendi barnsmóður sinnar samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Samkvæmt 66. gr. barnalaga má gera fjárnám fyrir meðlagi á grundvelli dóms, dómsáttar eða úrskurðar. Kæranda er því bent á að hann geti leitað aðfarar til tryggingar kröfu sinni á hendur barnsmóður sinni í samræmi við lög nr. 90/1989 um aðför.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 18. mars 2022 um upphafstíma milligöngu um meðlagsgreiðslur til kæranda.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma milligöngu um meðlagsgreiðslur til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum