Hoppa yfir valmynd
16. október 2020 Innviðaráðuneytið

Framlög vegna þjónustu við fatlað fólk áætluð 17,2 milljarðar árið 2021

Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2021 nema alls 17,2 milljörðum kr. Ráðherra samþykkti nýlega tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætlaða úthlutun almennra framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk á næsta ári.

Við útreikning framlaganna skiptast 88% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni stuðningsþarfar, 10,75% hlutfallslega miðað við jöfnun á grunni eigin útsvars og 1,25% hlutfallslega miðað við fjarlægð innan þjónustusvæða og fjölda sveitarfélaga á þjónustusvæðum.

Þær breytingar hafa orðið á útreikningum framlaga að ný flokkun Greiningar- og ráðgjafarstöðvar hefur verið tekin upp við skiptingu framlaga á grunni stuðningsþarfar. Skipting framlaganna byggði áður á eldri flokkun Greiningar- og ráðgjafarstöðvar að viðbættu álagi sem Jöfnunarsjóður reiknaði vegna hegðunar- og/eða heilsustuðuls.

Jafnframt fer fram leiðrétting á framlögum ársins 2019 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2019 og kemur leiðréttingin til viðbótar eða frádráttar áætluðum almennum framlögum ársins 2021. Leiðréttingin nemur 70 m.kr. og nema áætluð framlög næsta árs því 17.270 m.kr.

Framlögin eru greidd mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,99% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar og tekna sjóðsins af 0,235% af innheimtum skatttekjum ríkisins.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í maí 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum