Hoppa yfir valmynd
2. júní 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Reglugerð um neyslurými til umsagnar

Reglugerð heilbrigðisráðherra um neyslurými hefur verið birt til umsagnar til 30. júní næstkomandi. Alþingi samþykkti nýlega frumvarp heilbrigðisráðherra til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem fjallar um heimild sveitarfélaga til að stofna og reka neyslurými en reglugerðin á stoð í þeim lögum.

Í neyslurými verður einstaklingum heimilt að neyta ávana- og fíkniefna í æð. Markmiðið með neyslurýmum, sem er skaðaminnkandi aðgerð, er að koma í veg fyrir frekari óafturkræfan skaða, auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem neyta efnanna með þessum hætti.

Á grundvelli laganna ber heilbrigðisráðherra að setja reglugerð um stofnun og rekstur neyslurýma þar sem meðal annars skal kveðið á um þjónustu sem veita skal í neyslurými, um hollustuhætti, um verkefni, öryggi og hæfni starfsfólks, um upplýsingaskyldu rekstraraðila gagnvart Embætti landlæknis, setningu húsreglna og eftirlit með starfsemi neyslurýmis.

Í heilbrigðisráðuneytinu hefur undanfarið verið unnið að samningu þessarar reglugerðar um neyslurými. Við þá vinnu hafa verið hafðar til hliðsjónar þær ábendingar sem bárust í tengslum við vinnu að frumvarpinu, meðal annars frá Embætti landlæknis, Rauða krossi Íslands og Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess hafa verið hafðar til hliðsjónar reglugerðir um neyslurými í Noregi og Danmörku.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum