Hoppa yfir valmynd
15. desember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 448/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 448/2020

Þriðjudaginn 15. desember 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. september 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. september 2020, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun í lok júlí 2019 og var umsókn hans samþykkt. Í júní 2020 var ferilskrá kæranda send til fyrirtækis sem hafði auglýst eftir starfsmanni. Vinnumálastofnun barst í kjölfarið upplýsingar um að kærandi hefði hafnað vinnu hjá fyrirtækinu. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 1. september 2020, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði. Skýringar bárust ekki og var kæranda með bréfi, dags. 21. september 2020, tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. september 2020. Með bréfi, dags. 23. september 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 27. október 2020, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. nóvember 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi ekki hafnað starfi heldur hafi hann rætt við hótelstjórann og þeir komist að því að hann væri ekki hæfur í starfið. Kærandi hafi sagt hótelstjóranum að ef hann myndi ekki finna starf myndi hann að öllum líkindum yfirgefa landið og þannig hafi samtalið endað.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að málið varði 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar en 1. mgr. 57. gr. laganna eigi jafnt við um þann sem hafni starfi sem og þann sem hafni því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst eða sinni ekki atvinnuviðtali. Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið nánar á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé tekið fram að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Þá komi fram í þeim skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að viðkomandi hafi verið upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til og það sé gert með tölvupósti, sms sendingum eða tilkynningum á „Mínum síðum“. Umsækjandi sé því upplýstur um að honum sé skylt að láta vita af öllum breytingum, svo sem breyttu heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.

Í 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar séu tilgreindar þær ástæður sem geti komið til greina sem gildar skýringar við höfnun á starfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu. Enn fremur sé heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafni starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá sé einnig heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem geti ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Engar skýringar hafi borist þegar þess hafi verið óskað af stofnuninni en auk þess séu þær skýringar sem kærandi gefi í kæru til nefndarinnar í ósamræmi við þær upplýsingar sem atvinnurekandi hafi gefið stofnuninni. Það sé mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar kæranda á höfnun atvinnutilboðs sem hann færi fram í kæru sinni geti ekki talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006. Vinnumálastofnun bendi á að samhliða umsókn um atvinnuleysisbætur hafi kærandi sérstaklega tilgreint að hann óskaði eftir að starfa sem kokkur en það starf sem um ræði hafi verið starf kokks á hóteli. Stofnunin telji því skýringar kæranda um að starfið hafi ekki hentað honum ekki haldbærar, enda hafi hann sérstaklega óskað eftir því að stofnunin myndi miðla honum í slík störf samkvæmt upplýsingum í umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun telji að kærandi hafi með framferði sínu hafnað starfi, sem honum hafi boðist, í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 og beri að sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.

 

 

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði vísvitandi leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í fyrirliggjandi samskiptasögu er skráð að kærandi hafi þann 1. júlí 2020 hafnað starfi sem kokkur hjá tilteknu hóteli með vísan til þess að hann væri að fara úr landi. Kærandi hefur mótmælt því sem röngu og vísað til þess að eftir samtal við hótelstjórann hafi þeir orðið sammála um að hann væri ekki hæfur í starfið. Þær skýringar lágu ekki fyrir þegar Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun. Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndarinnar að tilefni sé fyrir Vinnumálastofnun að kanna hvort skýringar kæranda eigi við rök að styðjast. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og lagt fyrir Vinnumálastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. september 2020, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum