Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál 544/2020

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 544/2020

Fimmtudaginn 25. febrúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. október 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála málsmeðferð Vinnumálastofnunar vegna beiðni hans um rökstuðning.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 11. september 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. október 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 41%. Með erindi, dags. 2. október 2020, óskaði kærandi eftir rökstuðningi Vinnumálastofnunar vegna bótahlutfalls hans.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 27. október 2020 og vísaði til þess að hann hafi ekki enn fengið umbeðinn rökstuðning. Með bréfi, dags. 29. október 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 22. janúar 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að sökum mistaka hafi beiðni kæranda um rökstuðning ekki verið svarað fyrr en 12. nóvember 2020. Rökstuðningur hafi því ekki borist innan þess 14 daga frests sem kveðið væri á um í 3. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að mati Vinnumálastofnunar væri sá dráttur óréttlætanlegur. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. janúar 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

 

 

II.  Niðurstaða

Kærð er málsmeðferð Vinnumálastofnunar vegna beiðni kæranda frá 2. október 2020 um rökstuðning ákvörðunar um bótahlutfall kæranda. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að vegna mistaka hafi beiðni kæranda ekki verið svarað fyrr en 12. nóvember 2020, eða eftir lögbundinn 14 daga frest sem kveðið væri á um í 3. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Meðfylgjandi greinargerð Vinnumálastofnunar var afrit af rökstuðningi til kæranda.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Þar sem kærandi hefur fengið umbeðinn rökstuðning verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Að því virtu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum