Hoppa yfir valmynd
26. október 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 599/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 26. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 599/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23070034

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. júlí 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, aðallega með vísan til 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Þá vísar kærandi til þess að hann uppfylli skilyrði 74. gr. laga um útlendinga um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 4. desember 2022. Á grundvelli frásagnar kæranda um að hann hafi dvalið í Svíþjóð síðastliðin ár var 6. janúar 2023 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 13. janúar 2023, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Hinn 17. janúar 2023 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 20. janúar 2023, kom fram að kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Svíþjóð ásamt föður sínum og bróður 1. júlí 2019. Umsóknum þeirra hafi verið synjað 28. febrúar 2020 og orðið lagalega bindandi frá 10. júní 2022. Kærandi kom til viðtals í Barnahúsi 21. febrúar 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 28. júní 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 14. júlí 2023. Samkvæmt umboði sem barst kærunefnd 16. ágúst 2023 skipti kærandi um talsmann. Greinargerð frá nýjum talsmanni barst kærunefnd 6. október 2023 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn frá kæranda 16. október 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að sænsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn hans til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í fyrri greinargerð kæranda sem barst kærunefnd 14. júlí 2023, vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað málsatvik varðar. Þá kemur fram að kærandi sé fylgdarlaust barn, sé ekki í samskiptum við fjölskyldu sína og viti ekki hvar hún sé staðsett. Kærandi hafi aðeins einu sinni haft samband við fjölskyldu sína eftir að hann kom til Íslands í þeim tilgangi að láta föður sinn vita hvar hann væri staddur. Kærandi hafi ekki fengið viðeigandi menntun í Svíþjóð og sé sjálflærður í sænsku. Auk þess hafi verið mikið um glæpi og dæmi um að börn hafi verið þvinguð til afbrota af öðrum umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hafi búið í sama úrræði og fjölskylda kæranda. Fjölskylda kæranda hafi fengið synjun á umsóknum sínum um alþjóðlega vernd og frá þeim tíma hafi þau ekki fengið heilbrigðisþjónustu. Kærandi vísar til þess að þar sem hann hafi fengið synjun um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, jafngildi endursending hans til Svíþjóðar endursendingu til Palestínu. Í því samhengi vísar kæranda til slæmra aðstæðna í heimaríki. Viðtekin venja sé hjá Útlendingastofnun að veita ríkisborgurum Palestínu viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á grundvelli þess ástands sem ríki í landinu. Kærandi byggir á því að taka skuli mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, vegna persónulegra aðstæðna hans og þeirri viðkvæmu stöðu sem hann sé í. Kærandi mótmælir umfjöllun Útlendingastofnunar um að fjölskylda hans sé stödd í Svíþjóð vegna umsókna þeirra um alþjóðlega vernd. Kærandi viti ekki um afdrif fjölskyldu sinnar eftir að þau fengu synjun um alþjóðlega vernd þar í landi. Útlendingastofnun hafi ekki gengið úr skugga um að fjölskylda kæranda sé stödd í Svíþjóð og því óljóst hvaða aðstæður bíði hans þar í landi. Þá vísar kærandi til þess að Útlendingastofnun hafi litið svo á að kærandi væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Á þeim grundvelli ætti að taka mál kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til þess að endursending jafngildi endursendingu til heimaríkis þar sem hann muni vera í hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Kærunefnd barst önnur greinargerð frá kæranda, dags. 6. október 2023, ásamt fylgigögnum. Þar kemur fram að kærandi hafi mátt þola ágang glæpagengis  í Gautaborg. Gengið hafi reynt að þvinga hann til þess að taka þátt í glæpum en kærandi hafi neitað að vinna með þeim. Gengið hafi nálgast kæranda í nágrenni hans og þvingað hann til að flytja fíkniefni fyrir sig. Þeir hafi boðið honum greiðslu, byssu og veitt honum loforð um að vernda hann. Kærandi hafi orðið hræddur og ekki vitað hvað hann gæti gert. Hann hafi ákveðið að leita á næstu lögreglustöð og tilkynna atvikið. Lögreglan hafi óskað eftir að kærandi veitti frekari upplýsingar um gengið og að hann aðstoðaði hana við að handsama þá. Kærandi hafi ekki viljað það og hafi ekki getað gefið miklar upplýsingar um gengið en lögreglan hafi lofað honum vernd. Kærandi hafi í sakleysi sínu sagt vini sínum frá því sem hafi átt sér stað. Vinur hans hafi hins vegar haft tengsl við glæpagengið og hafi upplýst meðlimi gengisins um að kærandi hafi tilkynnt þá til lögreglunnar. Í kjölfarið hafi glæpagengið hótað kæranda og fjölskyldu hans og farið fram á að þau framkvæmdu ódæðisverk, þ. á m. verða fólki að bana. Kærandi og fjölskylda hans hafi áttað sig á hættunni sem þau voru í og ákveðið að skipta liði og fara í felur. Kærandi hafi komið til Íslands og misst tengsl við föður sinn og viti ekki hvar fjölskylda hans sé niðurkomin. Kærandi hafi ekki þorað að greina frá framangreindu í viðtali hjá Útlendingastofnun þar sem hann hafi viljað vernda fjölskyldu sína. Kærandi hafi óttast að ef hann segði sögu sína myndi það hafa áhrif á fjölskyldu hans. Talsmaður kæranda hafi þurft að sannfæra hann um að farið yrði með þær upplýsingar sem hann veitti sem trúnaðarupplýsingar.

Kærandi vísar til laga um útlendinga og reglna sem settar hafi verið á grundvelli þeirra, alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna og mannréttindasáttmála Evrópu. Kærandi byggir aðallega á því að endursending hans til Svíþjóðar brjóti í bága við 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að ákvörðun um að senda hann til Svíþjóðar eða heimaríkis brjóti í bága við grundvallarreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), auk 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 34/1994, 2. og 3. mgr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Á grundvelli þess geri kærandi kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi. Þá vísar kærandi til þess að hann uppfylli skilyrði 74. gr. laga um útlendinga, um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...]karlmaður og er því fylgdarlaust ungmenni. Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að hann hafi dvalið í Svíþjóð undanfarin fimm ár. Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd í Svíþjóð í júlí 2019 og var þeirri umsókn synjað í febrúar 2020. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í desember 2022. Í viðtali hjá Barnahúsi, dags. 21. febrúar 2023, greindi kærandi frá því að hann hafi flúið frá heimaríki árið 2018 ásamt föður sínum og bróður en móðir hans og yngri systir hafi farið á undan þeim til Svíþjóðar. Kærandi hafi búið ásamt föður sínum, bróður og fimm öðrum einstaklingum í litlu herbergi í Svíþjóð. Einstaklingarnir sem þeir hafi búið með hafi verið vafasamir og hann hafi átt á hættu að verða fyrir misnotkun. Þá hafi ýmsir aðilar reynt að þvinga hann til að flytja tösku sem hann hafi ekki viljað en algengt sé að börn séu látin hafa vopn og fíkniefni í því skyni að notfæra sér þau. Kærandi greindi frá því að hann hafi gengið í skóla í Svíþjóð en hann hafi ekki fengið að stunda það nám sem hann vildi. Þá hafi kærandi fengið heilbrigðisþjónustu í Svíþjóð en það hafi breyst eftir að honum hafi verið synjað um alþjóðlega vernd. Kærandi greindi frá því að hann hafi ekki sagt föður sínum hvert hann væri að fara þegar hann kom hingað til lands og vinur hans hafi greitt fyrir flugmiðann. Kærandi sé ekki í sambandi við fjölskyldu sína og viti ekki hvar þau séu. Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að vera við góða heilsu.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hefur fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Svíþjóð

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Sweden (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Sweden (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Asylum Information Database. National Country Report – Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 19. apríl 2023);
  • EASO Asylum Report 2022. Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union (European Asylum Support Office, júní 2023);
  • Freedom in the World 2023 – Sweden (Freedom House, mars 2023);
  • Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, ágúst 2019);
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016) og
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Svíþjóð er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Svíþjóð verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 3. september 1953. Svíþjóð gerðist aðili að samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 8. janúar 1986 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971 og barnasáttmálann árið 1990. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 26. október 1954.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) tekur sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Samkvæmt sænskum lögum þurfa að vera gildar ástæður fyrir því að upplýsingar eða gögn hafi ekki verið lögð fram fyrr í málsmeðferðinni. Ef réttmæt ástæða er til að telja að útlendingur sé í hættu á að hljóta dauðarefsingu, líkamlega refsingu eða sæta pyndingum, eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu við endurkomu sína til viðtökuríkis, þurfi þó ekki að sýna fram á að gildar ástæður séu fyrir því eða ný gögn eða nýjar upplýsingar komi svo seint fram. Synji sænska útlendingastofnunin að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra þá ákvörðun og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Á vef sænsku útlendingastofnunarinnar kemur fram að sænsk lög kveði á um skyldu útlendingayfirvalda í Svíþjóð til að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi við málsmeðferð þeirra. Þá séu barnaverndarnefndir starfandi til að gæta að hagsmunum barna.

Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á áðurnefndri heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í skýrslu ECRE að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sé tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Fylgdarlaus ungmenni njóta réttar til endurgjaldslausrar heilbrigðisþjónustu og tannhirðu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Eigi umsækjandi við andlega vanlíðan að stríða á hann rétt á því að óska eftir viðeigandi þjónustu frá heilsugæslunni sem staðsett er í sveitarfélaginu sem hann dvelst í. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eiga umsækjendur rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu, hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf. Þá missa umsækjendur rétt sinn til húsnæðis og framfærslu en geta þó leitað til hjálparsamtaka. Þó séu veittar undanþágur ef um er að ræða einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu og ósanngjarnt teljist að svipta þá réttar til húsnæðis. Fram kemur á vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar að fylgdarlaus ungmenni eigi rétt á sérstökum stuðningi við meðferð umsókna þeirra um alþjóðlega vernd. Félagsþjónusta hvers sveitarfélags beri ábyrgð á að tryggja viðeigandi þjónustu og húsnæðisúrræði fyrir fylgdarlaus ungmenni. Viðkomandi hefur val um að búa hjá ættingjum eða vinum, hjá fjölskyldu sem taka á móti börnum og ungmennum eða á vistheimili fyrir börn þar sem starfsfólk er til staðar. Fylgdarlaus ungmenni eiga rétt á forráðamanni sem ber ábyrgð á málefnum þeirra og fjárhagsaðstoð frá sænskum yfirvöldum.

Af framangreindum skýrslum má ráða að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Fylgdarlaus ungmenni njóta sama réttar á meðan mál þeirra er til meðferðar hjá útlendingastofnun og á kærustigi. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við málsmeðferð viðbótarumsókna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka sem veita lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Í skýrslu ECRE kemur fram að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd og fylgdarlaus ungmenni eigi rétt til menntunar í Svíþjóð. Sá réttur haldist virkur þrátt fyrir að börn hafi fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd. Þá eigi einstaklingar á aldrinum 18 til 25 ára kost á að sækja um dvalarleyfi á grundvelli menntunar uppfylli þeir tiltekin skilyrði. Ýmsir þættir hafa áhrif á það hvort umsókn um slíkt dvalarleyfi sé samþykkt, þ. á m. tegund menntunar og hvort viðkomandi einstaklingur sé fylgdarlaust barn eða í fylgd umönnunaraðila. Þá sé litið til tímalengdar afgreiðslu umsóknar um alþjóðlega vernd og hvort að viðkomandi hafi verið barn eða fullorðinn þegar ákvörðun um alþjóðlega vernd var tekin.

Samkvæmt skýrslu ECRE eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólunum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716) eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun. Ákvarðanir um varðhald eru almennt endurskoðaðar af dómstólum og við meðferð slíkra mála hjá dómstólnum eiga einstaklingar rétt á lögfræðiaðstoð.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að sænska stjórnarskráin krefjist þess af opinberum stofnunum að þær stuðli að jöfnuði í samfélaginu og komi í veg fyrir mismunun. Þarlend stjórnarskrá leggi jafnframt bann við óhagstæðri meðferð byggðri á þjóðernisuppruna, litarhætti eða öðru álíka og yfirvöld þar í landi hafi almennt virt þessi réttindi. Þá kemur fram að rómafólk og aðrir minnihlutahópar hafi orðið fyrir fordómum og mismunun en sænska lögreglan rannsaki slík brot. Í grunnþjálfun lögreglumanna felist m.a. þjálfun í að bera kennsl á og rannsaka hatursglæpi. Þá hafi lögreglan jafnframt verið í samstarfi við félaga- og hjálparsamtök sem hjálpi og styðji við eftirlifendur, vitni og aðra sem verði fyrir hatursglæpum.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mála annars með því.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er [...] ungmenni. Í hælisbeiðni, dags. 4. desember 2023, greindi kærandi frá því að vera við góða heilsu. Þá liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 20. febrúar 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 5. júlí 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin heilsufarsgögn bárust. Með vísan til þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd gerir athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé ekki vísað til þess með hvaða hætti kæranda hafi verið leiðbeint um þýðingu og framlagningu heilsufarsganga. Í ljósi þess að kærandi er fylgdarlaust barn fór hann í viðtal hjá Barnahúsi en ekki hjá Útlendingastofnun og er framkvæmd málsins því ekki með hefðbundnum hætti. Það er mat kærunefndar að Útlendingastofnun hafi borið að upplýsa kæranda sérstaklega um framangreint með tölvubréfi. Í ljósi gagna málsins og þess að úr þessu hafi verið bætt við meðferð málsins hjá kærunefnd telur kærunefnd þó ekki að um brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga sé að ræða.

Kærunefnd telur ljóst að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af framangreindum gögnum má ráða að umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, en fá þó ekki fjárhagsstuðning ríkisins til þess að greiða fyrir slíka þjónustu. Þá eigi fylgdarlaus ungmenni rétt á endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu og tannlæknaþjónustu. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kæranda komi til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi. Kærunefnd áréttar það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá hefur kærandi greint frá því við meðferð málsins að hafa haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Svíþjóð. Sú þjónusta hafi hins vegar breyst eftir að honum hafi verið synjað um alþjóðlega vernd.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í framangreindum gögnum kemur fram að fylgdarlaus ungmenni eigi rétt á sérstökum stuðningi við meðferð umsókna þeirra um alþjóðlega vernd. Félagsþjónusta hvers sveitarfélags beri ábyrgð á að tryggja viðeigandi þjónustu og húsnæðisúrræði fyrir fylgdarlaus ungmenni. Fylgdarlaus ungmenni eiga rétt á forráðamanni sem ber ábyrgð á málefnum þeirra og fjárhagsaðstoð frá sænskum yfirvöldum. Líkt og fram hefur komið hefur kærandi verið búsettur hjá föður sínum og bróður en hann viti ekki hvar fjölskylda hans sé staðsett í dag. Samkvæmt framangreindum upplýsingum eiga fylgdarlaus ungmenni rétt á menntun í Svíþjóð. Framangreindar upplýsingar bera með sér að einstaklingar á aldrinum 18-25 ára eigi þess kost að leggja fram umsókn um tímabundið dvalarleyfi í Svíþjóð á grundvelli menntunar. Kærandi kvaðst hafa gengið í skóla í Svíþjóð og hafa náð tökum á tungumálinu.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vafasamir einstaklingar hafi verið búsettir með honum og hann hafi verið í hættu á að verða fyrir misnotkun. Kærandi greindi svo frá því í greinargerð sinni til kærunefndar að hann hafi orðið undir áhrifum glæpagengis sem hafi neytt hann til að flytja fíkniefni. Kærandi hafi ekki viljað það og hafi leitað til lögreglunnar. Glæpagengið hafi frétt af því að kærandi hafi tilkynnt þá til lögreglu og leiti því kæranda og fjölskyldu hans auk þess sem þeim hafi verið hótað lífláti. Kærandi hefur lagt fram skjáskot af meintum hótunum glæpagengisins og myndskeið. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að í viðtökuríkinu sé löggæslan virk og að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Sænsk stjórnvöld hafa staðið fyrir átaki sem miðar að því að draga úr og koma í veg fyrir banvænt og alvarlegt ofbeldi á meðal glæpahópa. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu afbrotavarnarráðsins í Svíþjóð (BRA) hefur verið byggt á aðferð frá Bandaríkjunum Group Violence Intervention (GVI) sem hafi sýnt góðan árangur í ofbeldisfullum borgum í Bandaríkjunum. Farið hafi verið af stað með átakið í Malmö árið 2018 undir nafninu „sluta skjut“ en það hafi nú verið innleitt í fleiri sveitafélög, s.s. Gautaborg og Uppsala. Átakið sé samstarfsverkefni lögreglu, fangelsisyfirvalda og sveitafélaga. Þá sé það einnig unnið í samvinnu við afbrotavarnarráðið. Markmið átaksins sé að ná beinum samskiptum við glæpahópa, aðstoða meðlimi glæpahópanna að komast úr aðstæðum sínum og setja viðurlög sem nái til hópanna í heild sinni. Þá hafa yfirvöld í Svíþjóð gefið út að þau hafi fengið aukinn liðsauka frá hernum til að aðstoða sig við að uppræta glæpahópa og starfsemi þeirra í Svíþjóð. Það er mat kærunefndar að kærandi geti leitað aðstoðar og fengið vernd hjá lögreglu í Svíþjóð vegna meintra hótana sem hann hafi fengið frá glæpahópum í Svíþjóð. Þá gefur frásögn kæranda jafnframt til kynna að lögregla í Svíþjóð hafi veitt honum aðstoð þegar hann leitaði til þeirra.

Kærandi hefur greint frá því að hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð. Kærunefnd vísar til þess sem áður hefur komið fram að fái umsækjandi um alþjóðlega vernd endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænskum yfirvöldum eigi hann þess kost að leggja fram viðbótarumsókn, svo sem ef nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans. Kærandi gæti þannig lagt fram viðbótarumsókn vegna breyttra aðstæðna sinna, s.s. vegna aðstæðna í heimaríki hans. Engin takmörk séu á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig kost á því að bera synjunina undir dómstóla. Þá geti hann lagt fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji hann endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Af framburði kæranda má ráða að hann hafi notið allra grunnréttinda á meðan á málsmeðferð hans stóð hjá sænskum stjórnvöldum.

Í 16. tölul. formálsorða Dyflinnarreglugerðarinnar kemur fram að ef umsækjandi er fylgdarlaust ólögráða barn, sem á aðstandanda eða skyldmenni, sem getur annast hann, á yfirráðasvæði annars aðildarríkis, skal það einnig vera bindandi viðmiðun um ábyrgð. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar kemur m.a. fram að sé barn fylgdarlaust beri að taka ríkt tillit til afstöðu þess og þeirrar sérstaklega viðkvæmu stöðu sem það er í skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun er heimilt að taka umsókn fylgdarlauss barns til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, samrýmist það hagsmunum þess og afstöðu. Hagsmuni fylgdarlauss barns ber m.a. að meta með hliðsjón af möguleikum barns til fjölskyldusameiningar, sbr. 8. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Fyrir liggur að kærandi er fylgdarlaust ungmenni og hefur málsmeðferð kæranda hjá íslenskum stjórnvöldum tekið mið af því og hann notið þjónustu hér á landi í samræmi við þarfir hans. Kærandi hefur verið búsettur í Svíþjóð síðastliðin ár þar sem hann hefur dvalið hjá föður sínum og bróður. Þá hefur kærandi greint frá því að móðir hans og tvær systur búi í Svíþjóð en þær hafi haldið þangað á undan honum. Samkvæmt framburði kæranda hafi hann gengið í skóla og hann hafi sjálfur lært tungumálið og aðlagast þar með samfélaginu að einhverju leyti. Skólinn hafi ekki verið góður þar sem mikið væri um fíkniefni og önnur vandamál. Kærandi hafi verið búsettur með föður sínum og bróður ásamt fimm öðrum einstaklingum í litlu herbergi. Kærandi greindi frá því að hann hafi verið í hættu á misnotkun og að algengt sé að börn séu notfærð til að bera vopn og smygla fíkniefnum í Svíþjóð. Kærandi greindi frá því að honum og fjölskyldu hans hafi verið synjað um alþjóðlega vernd, hann hafi fundið upplýsingar á netinu um að Ísland tæki við einstaklingum frá Palestínu og því komið hingað. Vinur hans í Svíþjóð hafi greitt fyrir flugmiða hans til landsins. Kærunefnd telur gögn málsins ekki bera annað með sér en að kærandi hafi fengið fullnægjandi þjónustu og stuðning í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sænskra yfirvalda. Mál kæranda hefur verið skoðað með hliðsjón af meginreglunni um að hagsmunir barnsins skuli hafðir að leiðarljósi. Þá hefur verið höfð hliðsjón af möguleikum kæranda til fjölskyldusameiningar, sbr. 8. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og þeirri meginreglu Dyflinnarsamstarfsins að hagsmunir barns skuli hafðir að leiðarljósi við ákvörðunartöku. Í framangreindum heimildum um aðstæður fylgdarlausra barna í Svíþjóð kemur m.a. fram að fylgdarlaus ungmenni eigi rétt á sérstökum stuðningi við meðferð umsókna þeirra um alþjóðlega vernd. Félagsþjónusta hvers sveitarfélags beri ábyrgð á að tryggja viðeigandi þjónustu og húsnæðisúrræði fyrir fylgdarlaus ungmenni. Viðkomandi hafi val um að búa hjá ættingjum eða vinum, hjá fjölskyldu sem taka á móti börnum og ungmennum eða á vistheimili fyrir börn þar sem starfsfólk er til staðar. Þá eigi fylgdarlaus ungmenni rétt á forráðamanni sem ber ábyrgð á málefnum þeirra og fjárhagsaðstoð frá sænskum yfirvöldum. Með vísan til framangreindra upplýsinga um aðstæður fylgdarlausra umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð telur kærunefnd að hagsmunir kæranda séu tryggðir þar í landi, án tillits til þess hvort hann sameinist fjölskyldu sinni eða ekki. Samkvæmt framanröktu er jafnframt ljóst að sænsk yfirvöld muni veita kæranda nauðsynlega aðstoð og þjónustu sem kærandi þurfi á að halda sem fylgdarlaust ungmenni þar í landi. Er það mat kærunefndar að viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga leiði ekki til þess að taka beri umsókn kæranda til efnismeðferðar. Er það jafnframt mat kærunefndar að flutningur kæranda til Svíþjóðar samrýmis hagsmunum hans þegar litið er m.a. til öryggis hans, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja beiðni um að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum kæranda að umsókn hans verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í hælisbeiðni, dags. 4. desember 2022, ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þá greindi hann ekki frá tengslum við landið í viðtali hans hjá Útlendingastofnun, dags. 21. febrúar 2023. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 4. desember 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafla sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Vegna umfjöllunar í greinargerð leggur kærunefnd áherslu á að við túlkun á því hvaða skyldur hvíla á ríkjum sem senda einstaklinga til annarra ríkja þar sem þeir kunna að vera sendir áfram til þriðja ríkis (e. indirect refoulement) hefur nefndin horft á hvort ríkið, sem senda á einstaklinginn til, veiti raunhæfa vernd (e. effective guarentees) til að tryggja að einstaklingar verði ekki sendir áfram í ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi. Kærunefnd telur gögn málsins bera með sér að í Svíþjóð sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framsögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sambærileg aðferðarfræði er varðar mat á því hvort viðtökuríki tryggi raunhæfa vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þess eða frelsi er ógnað kemur fram í dómi Hæstaréttar í máli nr. 405/2013, dags. 24. október 2013.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga 

Kærandi vísar til þess í greinargerð sinni að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Samkvæmt orðalagi ákvæðisins kemur ekki til skoðunar að veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli þess nema umsókn um alþjóðlega vernd hafi verið tekin til efnismeðferðar. Mál kæranda heyrir undir c-lið 36. gr. laga um útlendinga og hefur samkvæmt öllu framanröktu verið synjað um efnismeðferð. Kemur því ekki til skoðunar hvort hann uppfyllir skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 4. desember 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda hann til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Gunnar Páll Baldvinsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum