Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2000 Utanríkisráðuneytið

Störf Norrænu ráðherranefndarinnar 1999

Ræða samstarfsráðherra Sivjar Friðleifsdóttur á Alþingi
vegna umræðna um skýrslu um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 1999 6. apríl 2000



Herra forseti,

Ég mæli fyrir skýrslu samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar sem liggur frammi. Íslendingar höfðu með höndum formennsku í ráðherranefndinni árið 1999. Í hópi samstarfsráðherranna var Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra í forsvari fyrri hluta ársins þar til ný ríkisstjórn tók við völdum, að loknum alþingiskosningum, í júní þegar ég tók við þeim störfum.

Formennskuhlutverki í ráðherranefndinni fylgja talsverðar annir bæði fyrir ráðherrana, sem gegna formennsku hver í sinni fagráðherranefnd og fyrir þann fjölda embættismanna í stjórnsýslunni, sem að málinu kemur.

En jafnframt gefur það færi á að móta og fylgja eftir ákveðnum áherslum sem formennskulandið setur fram. Ég tel vel hafa tekist til þetta tímabil bæði með stjórn og eftirfylgni áherslumála og vil þakka þeim, er að málinu hafa komið.

Ég ætla að draga hér fram í dagsljós nokkra þætti skýrslunnar án þess að það verði tæmandi talning á atburðum starfsársins. Jafnframt mun ég skýra frá nokkrum ákvörðunum, sem voru teknar á þessu ári.

Árið 1999 voru fjárlög Norrrænu ráðherranefndarinnar 741miljónir danskra króna og skiptust þannig að rúmlega 70% þeirra runnu til hins hefðbundna norræna samstarfs, 20% til samstarfs um málefni grannsvæðanna og 9% til samstarfs um Evrópumál. Sé innihaldið flokkað á annan hátt, kemur í ljós að tæpur helmingur fjárveitinganna rann til menningar- og menntamála, eða rúmlega 45%, um 25% til umhverfis- og auðlindamála og þau 30% sem eftir voru skiptust milli annarra sviða og reksturs aðalskrifstofunnar.

Í starfsemi sem þessari, þar sem starfræktar er 31 stofnun, fjölbreytt styrkjakerfi og starfs- og nemendaskipti, auk víðtæks verkefnastarfs, fer ekki hjá því að ákveðin sjálfvirkni komist á fjárveitingar. Hún hefur ásamt öðru leitt til þess að ráðrúm til nýrra pólitískt áhugaverðra verkefna er orðið þröngt. Vandinn er enn brýnni þar sem ekki hefur náðst sátt um hækkun fjárveitinga til samstarfsins og eru norrænu fjárlögin í ár lægri en þau voru fyrir sjö árum. Af þessum ástæðum ákváðu samstarfsráðherrarnir eftir síðustu áramót að endurskoða uppbyggingu fjárlaganna með það að markmiði að skapa svigrúm til nýsköpunar í störfum ráðherranefndarinnar. Niðurstöður endurskoðunarinnar eiga að liggja fyrir síðar á árinu.

Þau markmið sem stefnt var að á formennskuári okkar Íslendinga voru sett fram í sérstakri formennskuáætlun þar sem gerð var grein fyrir forgangsmálum okkar á öllum sviðum samstarfsins. Vegna sérstakrar áherslu á sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, náttúruvernd og lífskjör á Vestur-Norðurlöndum og öðrum norðlægum slóðum var jafnframt lögð fram sérstök markmiðslýsing eða áætlun undir yfirskriftinni "Fólk og haf í Norðri". Sá árangur sem náðist með þessu móti var þrenns konar. Í fyrsta lagi var hafist handa um ýmis verkefni sem ég mun víkja frekar að hér á eftir. Í öðru lagi jókst þátttaka og virkni af hálfu Færeyinga og Grænlendinga á mörgum sviðum samstarfsins eins og að var stefnt, jafnframt því sem tekið var upp óformlegt tví- og þríhliða samstarf milli Íslands, Færeyja og Grænlands á nokkrum sviðum. Og í þriðja lagi er það mikilvægt fyrir árangur til framtíðar, að Danir lofuðu í formennskuáætlun sinni að fylgja þessum áherslum okkar eftir. Það skiptir máli því flest verkefni ráðherranefndarinnar eru til lengri tíma en árs.

Þær áherslur, sem við Íslendingar settum fram í "Fólki og hafi" endurspeglast í verkefnum ráðherranefndarinnar á fjölmörgum sviðum. Til að gefa mynd af afrakstri ársins, nefni ég hér nokkur þeirra helstu:

Fyrst ber að telja að á árinu 1999 hófst víðtækur undirbúningur að stefnumótun til næstu 20 ára um sjálfbær Norðurlönd. Verkið er unnið í tilefni yfirlýsingar sem forsætisráðherrar Norðurlanda gáfu þessa efnis í árslok 1998. Ætlunin er að stefnumótunin verði lögð fyrir Norðurlandaráð í september á þessu ári þannig að unnt verði að fjalla um hana á þingi Norðurlandaráðs hér í Reykjavík í nóvember n.k. Við undirbúning stefnumótunarinnar er margt af því sem stefnt var að með "Fólki og hafi" sett í fyrirrúm.

Bæði á sviði umhverfis- og sjávarútvegsmála voru á dagskrá á starfsárinu fjölmörg verkefni þar sem markmið "Fólks og hafs" voru í fyrirrúmi. Ég nefni þar sérstaklega Framkvæmdaáætlunina um vernd náttúru- og menningarminja á norðurskautssvæðum, Íslandi og Svalbarða ásamt þverfaglegu Umhverfis- og sjávarútvegsáætluninni. Í samræmi við áætlanir þessar er unnið að verkefnum sem snúa að sjálfbærri ferðaþjónustu, staðardagskrá 21 á Norðurskautssvæðum, áhrif botnvörpuveiða á lífríki sjávar og sjálfbærni í sjávarútvegi svo eitthvað sé nefnt.

Innan norrænu Rannsóknaáætlunarinnar um Norðurskautsmál og Norðurskautsáætlunarinnar er unnið að fjölda verkefna þar sem markmið "Fólks og hafs" eru höfð að leiðarljósi. Dæmi þessa eru verkefni um líffræðilega fjölbreytni, um umhverfisvá á norðurslóð, um fjarlækningar, tengslanet sérfræðinga á svæðinu, könnun á lífskjörum þjóða á Norðurskautssvæðunum, ásamt verkefnum þar sem markmiðið er kynning erlendis á lífskjörum þessara þjóða. Eitt verkefnanna er stuðningur við þátttöku frumbyggja á norðurslóð í heimssýningunni í Hannover í sumar.

Á sviði byggðamála voru einnig á dagskrá verkefni og áætlanir, sem snerta hagsmuni fólks á norðvestlægum svæðum sérstaklega. Meðal annars veitti Norræna Atlantsnefndin (NORA), sem heyrir undir það svið og hefur árlega til ráðstöfunar 50 milljónir ísl. króna, styrki til fjölda vestnorrænna samstarfsverkefna. Íslenskir aðilar komu þar að næstum 60 verkefnum.

Á sviði menningarmála var lögð sérstök áhersla á stöðu jaðarsvæða og fámennra þjóðarsamfélaga og voru af því tilefni haldnar tvær ráðstefnur um það efni hér á landi. Á annarri þeirra var sjónum beint að menningu og tómstundum barna og ungmenna á jaðarsvæðum og á hinni var það staða fámennra þjóða og jaðarsvæða í norrænu menningarsamstarfi.

Að lokum vil ég nefna ráðstefnu, sem haldin var í Reykjavík í desember síðast liðnum um samstarf á Norður-Atlantssvæðinu. Hana sóttu fulltrúar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi ásamt fulltrúum frá Skotlandi og eyjunum auk Nýfundnalands. Þar kom fram mikill áhugi á að hefja á norrænum vettvangi verkefnasamstarf um sameiginleg hagsmunamál þessara landa og svæða og beindist áhuginn fremst að umhverfismálum sjávar, en einnig að landbúnaðarsamstarfi og ferðamennsku.

Það var fleira en vestnorrænir hagsmunir, sem við Íslendingar settum í fyrirrúm á starfsárinu. Eitt af því sem við settum okkur í upphafi árs var að nota formennskutímann til að gera norrænt samstarf um Evrópumál markvissara og ég tel okkur hafa orðið vel ágengt í því.

Upplýsingastreymið milli ráðherranefndarskrifstofunnar í Kaupmannahöfn og norrænu sendiráðanna í Brussel hefur orðið skilvirkara en áður og samráð ráðherra norrænu ríkjanna fyrir ESB fundi hefur aukist. Eins voru haldnar tvær norrænar ráðstefnur í Brussel í samstarfi sendiráðs Íslands, viðkomandi fagráðuneytis á Íslandi og ráðherranefndarskrifstofunnar. Önnur var í tilefni bókarinnar "Kyn og stjórnvöld á Norðurlöndum" og hin var um umhverfisþátt norðlægu víddarinnar. Báðar tókust vel og þjónuðu þeim tilgangi að koma norrænum sjónarmiðum að á vettvangi ESB.

Á starfsárinu var að tillögu þáverandi samstarfsráðherra, Halldórs Ásgrímssonar ákveðið að skipa nefnd - Aldamótanefndina eða "Vismandspanelet" - sem falið var að meta hvaða breytinga væri þörf á inntaki norræns samstarfs við upphaf nýrrar aldar til að samstarfið þjóni áfram pólitísku hlutverki sínu. Einn meginþáttur þess, sem nefndinni er falið að meta, er norrænt samstarf í ljósi alþjóðavæðingarinnar. Nefndin skilar áliti sínu í september og stefnt er að því að það verði lagt fyrir þing Norðurlandaráðs í Reykjavík í nóvember.

Norræna ráðherranefndin tók á starfsárinu þátt í tveimur samstarfsverkefnum, sem við Íslendingar settum á oddinn. Annað var ráðstefnan Konur og lýðræði, sem ríkisstjórn Íslands hélt í samstarfi við ríkisstjórn Bandaríkjanna og Norrænu ráðherranefndina. Ráðherranefndin hefur síðan tekið að sér mikilvægt hlutverk við eftirfylgni ráðstefnunnar.

Hitt verkefnið var þátttaka í fjármögnun og undirbúningi á viðamikilli sýningu um víkingatímann og víkingana, sem opnuð verður í Smithsonian safninu í Washington síðar í þessum mánuði til að minnast landafundanna og vesturfara norrænna manna. Ætlunin er að hún fari síðan til fleiri borga í Bandaríkjunum og Kanada.

Upplýsingatækni, matvælaöryggi og varnir gegn fíkniefnum voru einnig forgangsmál í formennskuáætlun okkar. Því er það fagnaðarefni að á síðasta ári skyldi ákveðið að stofnaðar yrðu ráðherranefndir á sviði upplýsingatækni og fíkniefna ásamt því að í undirbúningi er fundur þeirra ráðherra er fara með matvælamál. En fyrirsvar ráðherra á málaflokkunum er forsenda þess að unnt sé að taka á málum með kraftmiklum hætti. Með samstarfi, sem stýrt er af embættismönnum má ná vissum árangri, en sé ætlunin að gefa starfinu raunverulegt vægi, þurfa stjórnmálamenn að vera tilbúnir að ganga fram fyrir skjöldu og leggja sitt lóð á vogarskálina.

Það er athyglisvert hve mikil gróska er um þessar mundir í norrænu samstarfi á vettvangi atvinnulífsins. Samruni og samstarf norrænna fyrirtækja er nánast orðið daglegt brauð. Þessa þróun er vert að styðja og á liðnu ári var að frumkvæði utanríkisviðskiptaráðherra landanna gerð úttekt á þeim hindrunum sem fyrir slíku samstarfi eru í löggjöf landanna. Eins og við var að búast kenndi þar margra grasa og verður þessu starfi því fylgt eftir meðal annars af Aldamótanefndinni.

Ætlunin er og að gera átak hvað varðar aðstoð við þá sem flytja búferlum milli landanna til starfa eða náms. Þjónustusíminn Halló Norðurlönd var stofnaður til reynslu fyrir tveimur árum í þessum tilgangi. Og þangað gefst almenningi kostur á að hringja endurgjaldslaust til að fá ráðleggingar og upplýsingar um réttindi sín samkvæmt norrænum samningum. Nú eru uppi áform um að auka þjónustuna og koma á símsvörun í öllum löndunum. Þessari aukningu fylgir þó nokkur kostnaðarauki og endanlega ákvörðun um framhaldið verður tekin á fundi okkar samstarfsráðherranna í júní í sumar.

Eftir að aðalskrifstofa Norðurlandaráðs flutti frá Stokkhólmi hefur norrænt samstarf þótt falla um of í skuggann þar í borg. Því ákváðu samstarfsráðherrarnir nýverið að opna upplýsingaskrifstofu, svokallað "Informationsfönster" við Sergels torg í miðborg Stokkhólms og þegar hefur verið opnuð upplýsingaskrifstofa í Osló, heldur minni í sniðum.

Sem kunnugt er tóku Danir við formennskunni af okkur við síðustu áramót. Formennskuáætlun þeirra ber yfirskriftina: Norrænu velferðarsamfélögin. Áhersla er þar lögð á að lýðræðishefðin, keimlík afstaða þjóðanna til félagslegrar ábyrgðar, og viljinn til að hlúa að atvinnulífinu eigi allt rætur að rekja til sameiginlegs menningargrunns norrænu þjóðanna. Á tímum síaukinnar alþjóðavæðingar leggja Danir áherslu á að nauðsynlegt sé að standa vörð um og kynna þessi gildi og við deilum þeirri skoðun með þeim.

Ég hef hér skýrt frá nokkru því sem var á dagskrá ráðherranefndarinnar á liðnu ári og upphafi þessa árs. Fjölmargt er þó ótalið og vísa ég um það til skýrslu samstarfsráðherra. Hún er unnin í samstarfi ráðuneytanna allra og gefur glögga mynd af því fjölbreytta og umfangsmikla starfi sem unnið er á norrænum vettvangi.

Að lokum vil ég þakka fulltrúum í Íslandsdeild Norðurlandaráðs fyrir gott samstarf og óska þeim velfarnaðar á formennskuári Íslands í Norðurlandaráði.

Eftir umræður um skýrslu samstarfsráðherra tók ráðherra aftur til máls

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum