Hoppa yfir valmynd
20. júní 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 314/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 20. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 314/2019

Í stjórnsýslumáli nr. KNU19040117

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

 

Þann 30. apríl 2019 barst kærunefnd útlendingamála kæra […], kt. […], ríkisborgara Póllands (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. mars 2019, um að brottvísa honum og ákveða honum endurkomubann til Íslands í þrjú ár.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 5. apríl 2019. Þann 30. apríl sl. barst kærunefnd tilkynning um kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar. Er samkvæmt framansögðu ljóst að kærufresturinn, sem var til 20. apríl 2019, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var kæranda, með tölvupósti kærunefndar dags. 8. maí 2019, veitt tækifæri til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í greinargerð kæranda, dags. 17. maí 2019, segir að kærandi hafi verið haldinn geðsjúkdómi. Kærandi hafi ekki verið með réttu ráði frá 24. febrúar 2019 en þann dag hafi þurft að fresta yfirheyrslu yfir honum sem hafi farið fram degi síðar. Þar hafi kæranda jafnframt verið birt tilkynning um hugsanlega brottvísun. Ber kærandi því við að muna ekki eftir því að hafa verið birt hin eiginlega ákvörðun í málinu. Meðal fylgiskjala frá kæranda er tölvupóstur frá Fangelsismálastofnun ríkisins þar sem fram kemur að kærandi hafi afplánað fangelsisrefsingu á geðdeild Landspítala þann 23. til 26. apríl sl.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér geti t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Eins og áður hefur komið fram var ákvörðun Útlendingastofnunar birt kæranda þann 5. apríl 2019. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Gögn málsins bera jafnframt með sér að kæranda hafi verið tilkynnt ákvörðun Útlendingastofnunar að viðstöddum lögreglumanni og túlki.

Þótt gögn málsins beri með sér að kærandi hafi átt við andlega erfiðleika að stríða telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að afsakanlegt hafi verið að kæra hafi borist of seint. Í því sambandi hefur kærunefnd m.a. litið til þess að skjal þar sem kærandi veitir lögmanni sínum umboð til að koma fram fyrir hans hönd, m.a. vegna samskipta við kærunefnd útlendingamála, er dagsett þann 10. apríl 2019, eða 10 dögum áður en frestur til að kæra ákvörðun Útlendingastofnunar rann út og nokkru áður en kærandi var lagður inn á sjúkrahús vegna veikinda. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda, og aflað viðbótargagna frá lögreglu vegna málsins. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

 

Úrskurðarorð

 

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

The Immigration Appeals Board dismisses the applicant appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

 

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                 Anna Valbjörg Ólafsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum