Hoppa yfir valmynd
2. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 605/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 2. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 605/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21100064

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 29. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. janúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 3. maí 2021. Þann 10. maí 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og var þeirri beiðni hafnað með úrskurði kærunefndar þann 26. maí 2021.

Þann 25. október 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku og frestun á réttaráhrifum. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd dagana 28. október og 15. nóvember 2021 frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og dagana 4. og 16. nóvember 2021 frá Útlendingastofnun. Athugasemdir bárust frá kæranda þann 8. nóvember 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá óskar kærandi eftir því að réttaráhrifum verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá kærunefnd útlendingamála með vísan til 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda kemur fram að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 24. október 2020. Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum þar til endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi og að tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn hér á landi sé stjórnvöldum skylt að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 24. október 2020 og hefur hann ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og því kemur til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 26. október 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar frá stoðdeild barst kærunefnd þann 28. október 2021 en þar kemur m.a. fram að stoðdeild hafi borist verkbeiðni í máli kæranda þann 11. maí 2021. Þann 9. júní 2021 hafi stoðdeild haft samband við kæranda símleiðis og hann greint frá því að vera í sóttkví. Kæranda hafi verið gerð grein fyrir því að haft yrði samband við hann síðar. Þann 12. júlí 2021 hafi stoðdeild aftur haft samband við kæranda símleiðis og hann greint frá því að vilja ekki vinna með íslenskum stjórnvöldum varðandi flutning til viðtökuríkis og þá hafi kærandi greint frá því að ætla ekki að afhenda Covid-19 mótefnavottorð. Þar sem afstaða kæranda hafi legið fyrir hafi ekki verið haft samband við hann aftur.

Svar frá Útlendingastofnun barst þann 4. nóvember 2021 en þar kemur m.a. fram að stofnunin hafi fengið upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra þess efnis að kærandi hafi neitað að sýna samstarfsvilja í tengslum við framkvæmd flutnings hans til viðtökuríkis. Það sé því mat stofnunarinnar að rekja megi tafir á flutningi til viðtökuríkis til athafna eða athafnaleysis kæranda sem hann beri sjálfur ábyrgð á og vegna áskilnaðar stjórnvalda í Grikkland um framvísun á neikvæðu Covid-19 vottorði eða bólusetningarvottorði hafi ekki verið hægt að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn hafi liðið. Tafir kæranda geti því ekki talist óverulegar. Það sé því mat Útlendingastofnunar að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga fyrir því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar séu ekki uppfyllt.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 4. nóvember 2021, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar ríkislögreglustjóra og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Andmæli kæranda bárust kærunefnd dagana 8. og 10. nóvember 2021. Kærandi vísar í andmælum sínum til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21070020, frá 26. ágúst 2021, en þar hafi komið fram að ekki verði litið svo á að yfirlýsing kæranda um að vilja ekki snúa aftur til viðtökuríkis eða undirgangast Covid-19 sýnatöku geti ein og sér talist vera töf á afgreiðslu máls. Kærandi telji aðgerðir stoðdeildar hafa verið ómarkvissar og að sömu sjónarmið og komi fram í framangreindum úrskurði kærunefndar eigi við í málinu. Því beri kærandi ekki ábyrgð á því að tafir hafi orðið á máli hans. Þá tók kærandi fram að hann hefði ekki smitast af Covid-19.

Í kjölfar andmæla kæranda óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá stoðdeild og Útlendingastofnun og bárust svör dagana 15. og 16. nóvember 2021. Þau svör sem kærunefnd bárust bera með sér að kærandi hafi ekki greinst með Covid-19 og ekki verið á lista yfir þá umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafi fengið sjúkdóminn.

Af svörum stoðdeildar má ráða að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands og afstöðu hans til þess að afhenda stoðdeild Covid-19 mótefnavottorð sem er eitt af þeim skilyrðum sem grísk stjórnvöld gera fyrir viðtöku á kæranda. Af andmælum kæranda og svörum Útlendingastofnunar er ljóst að kærandi hafi ekki verið greindur með Covid-19 og því verið ómögulegt að afhenda stoðdeild umrætt vottorð. Síðustu samskipti stoðdeildar við kæranda áttu sér stað þann 12. júlí 2021 en 12 mánaða fresturinn í máli kæranda rann út þann 24. október 2021. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreinds er ekki tilefni til þess að fjalla um kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa á grundvelli 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                 Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum