Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 310/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 1. júlí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 310/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21060018

 

Beiðni […] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í stjórnsýslumáli nr. KNU19090038, dags. 5. desember 2019, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar frá 2. september 2019 um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 9. desember 2019. Þann 9. júní 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins.

Endurupptökubeiðni kæranda byggir á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hinn 4. febrúar 2019 hafi talsmanni hans hjá Rauða krossinum verið tilkynnt um að kærandi hafi verið skráður horfinn og eftirlýstur frá og með 3. febrúar 2019. Hinn 7. maí 2021 hafi Rauða krossinum borist tilkynning frá Útlendingastofnun um að kærandi hafi aftur sótt um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 5. maí 2021. Kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að hann hafi ekki yfirgefið landið frá því að honum hafi verið birtur úrskurður kærunefndar útlendingamála í máli hans hinn 9. desember 2019. Hinn 17. maí 2021 hafi Útlendingastofnun upplýst kæranda um að til stæði að flytja hann til Svíþjóðar á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin) þar sem frestur til þess að framkvæma flutning væri ekki liðinn. Í dag séu hins vegar 18 mánuðir liðnir frá því að lokaákvörðun í máli kæranda var birt honum og flutningur hafi ekki enn átt sér stað.

Kærandi byggir á því að þar sem 18 mánaða frestur samkvæmt 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar til þess að flytja hann til viðtökuríkis sé liðinn og kærandi sé enn staddur hér á landi sé skylda viðtökuríkis til þess að taka við kæranda fallin niður. Ábyrgð á umsókn kæranda hafi þ.a.l. færst sjálfkrafa yfir á íslenska ríkið. Vegna þessa hafi atvik í máli kæranda breyst verulega frá því að ákvörðun í máli hans var tekin og því sé skilyrði 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga fyrir endurupptöku uppfyllt í máli kæranda.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Kærandi byggir á því að skylda Svíþjóðar til að taka við kæranda sé fallin niður þar sem flutningur hans hafi ekki farið fram innan 18 mánaða frests sem er tilgreindur í 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Af lestri greinargerðar kæranda er því ljóst að kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á því að atvik hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli hans var kveðinn upp þar sem umræddur frestur leiði til þess að ekki sé lengur heimilt að synja umsókn kæranda um efnismeðferð á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b-, og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverjum samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröðun, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Eins og fram kemur í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. KNU19090038 frá 5. desember 2019 samþykkti Svíþjóð viðtöku á kæranda á þeim grundvelli að hann hefði fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi, sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli C-201/16 Shiri frá 25. október 2017, 26. - 34. mgr. Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar, s.s. úrskurði nefndarinnar nr. KNU19040090 frá 9. maí 2019, að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu sænsk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda þann 15. júlí 2019. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda þann 9. desember 2019.

Í ljósi endurupptökubeiðni kæranda taldi kærunefnd tilefni til að óska eftir nánari upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra. Með tölvubréfi, dags. 21. júní 2021, óskaði nefndin eftir upplýsingum um stöðu kæranda hér á landi og atriðum tengdum flutningi hans til Svíþjóðar. Svar frá Útlendingastofnun barst samdægurs og svar frá stoðdeild barst hinn 23. júní 2021. Þar kom m.a. fram að mál kæranda hafi verið sent í framkvæmd hjá stoðdeild ríkislögreglustjóra hinn 17. desember 2019. Hinn 3. febrúar 2020 hafi Útlendingastofnun og stoðdeild borist tilkynning um að kærandi hafi ekki mætt í nafnakall í tvær vikur. Tilkynning um að kærandi hafi hlaupist á brott hafi verið send til sænskra stjórnvalda hinn 4. febrúar 2020. Kærandi hafi í kjölfarið verið skráður horfinn og eftirlýstur í LÖKE auk þess sem Rauði krossinn hafi verið upplýstur um stöðu hans. Hinn 5. maí 2021 hafi stoðdeild ríkislögreglustjóra látið Útlendingastofnun vita að kærandi væri kominn í leitirnar. Kærandi var í kjölfarið tekinn í viðtal hjá Útlendingastofnun þar sem hann var spurður út í ferðir hans, dvalarstað og framfærslu frá því að hann hafi látið sig hverfa. Í umræddu viðtali, dags. 14. maí 2021, greindi kærandi frá því að hann hafi dvalið á Íslandi frá árinu 2019. Þá greindi Útlendingastofnun frá því að þar sem frestur til þess að senda kæranda til Svíþjóðar væri ekki útrunninn hafi verið ákveðið að framkvæma flutning og var hann áætlaður hinn 27. maí 2021 en frestur til þess að flytja kæranda myndi renna út hinn 5. júní 2021. Kæranda og lögmanni hans hafi verið greint frá því og kærandi boðaður í Covid-19 próf degi fyrir fyrirhugaðan flutning. Hinn 26. maí 2021 hafi kærandi látið sig hverfa og verið skráður horfinn og eftirlýstur hinn 27. maí 2021.

Líkt og áður hefur komið fram var úrskurður kærunefndar birtur fyrir kæranda hinn 9. desember 2019 og flutningur til viðtökuríkis hefur ekki enn átt sér stað. Því eru liðnir meira en 18 mánuðir frá því að endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi lá fyrir. Af þeim sökum er íslenskum stjórnvöldum ekki lengur heimilt að krefjast þess að viðtökuríkið taki við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Í ljósi þess að flutningur kæranda til viðtökuríkis fór ekki fram innan þeirra tímafresta sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum