Hoppa yfir valmynd
14. október 2013 Utanríkisráðuneytið

Samningur um Ólympíuleika fatlaðra

Þórir Ibsen undirritar.

Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Belgíu, var meðal 57 sendiherra sem undirrituðu vinasamning við þau sveitarfélög sem verða gestagjafar á evrópuleikum Ólympíuleika fatlaðra sem haldnir verða í Belgíu dagana 13.-20. september 2014.  Yfir 2,000 manns taka þáttt í leikunum og keppa þeir í tíu íþróttagreinum. Yfirskrift leikanna er Leikar Hjartans.

Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) er umsjónaraðili Ólympíuleika fatlaðra á Íslandi en Ísland gerðist aðili að leikunum árið 1989 og hefur síðan þá verið virkur þátttakandi í alþjóðastarfi samtakanna. Evrópuleikarnir eru haldnir fjórða hvert ár.

Íslenska sendinefndin árið 2014 telur um 50 manns og það er bærinn Kortrijk í vesturhluta Belgíu sem verður gestgjafi íslensku sendinefndarinnar dagana 9.-13. september.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum