Hoppa yfir valmynd
23. september 2022 Utanríkisráðuneytið

Fylkja liði gegn yfirvofandi hungursneyð

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Þjóðarleiðtogar, mannúðarsamtök og einkaaðilar hétu í gær alls 280 milljónum dala – tæpum 40 milljörðum króna – til að berjast gegn síversnandi vannæringu barna í heiminum. Frá því í júlí nema slíkar skuldbindingar alls 577 milljónum dala, um 82 milljörðum króna. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, ráðstafar að minnsta kosti 60 prósent þeirrar upphæðar til að halda áfram lífsbjargandi verkefnum.

UNICEF stóð fyrir viðburði í gær á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna ásamt Þróunarsamvinnustofnun Bandaríkjanna (USAID), Children‘s Investment Fund Foundation (CIFF) og stjórnvöldum í Senegal í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Yfirskrift viðburðarins var The Child Malnutrition Crisis: Pledging to Save Lives.

Ríkisstjórnir Kanada, Írlands, Hollands og Bretlands, auk Aliko Dangote Foundation, Bill & Melinda Gates Foundation, CIFF, Eleanor Crook Foundatiion, Greta Thunberg Foundation, Humanitarian Services of The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints og King Philanthopies komu þar saman og hétu því að leggja málstaðnum lið.

„Hamfaraþurrkar vegna loftslagsbreytinga, átök og hækkandi matvælaverð hafa haft skelfilegar afleiðingar fyrir ung börn víða um heim sem glíma nú við alvarlega vannæringu sem aldrei fyrr. Í þeim löndum sem verst hafa orðið úti, þar á meðal á Afríkuhorni og í Sahel verður barn alvarlega vannært á hverri einustu mínútu samkvæmt nýjustu greiningu UNICEF,“ segir í frétt frá UNICEF.

„Milljónir barna eru á heljarþröm þess að verða hungurmorða – ef ekkert verður að gert endar þetta með hörmungum,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Þakklæti er okkur hjá UNICEF efst í huga yfir þessum framlögum sem okkur hafa borist en það þarf meira af óbundnu fjármagni til að ná til barna áður en það er um seinan. Við getum ekki staðið hjá og látið börn deyja, ekki þegar við höfum allt sem þarf til að koma í veg fyrir það, greina og meðhöndla alvarlega vannæringu og rýrnun.“

Sjá nánar á vef UNICEF

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum