Hoppa yfir valmynd
23. maí 2024 Matvælaráðuneytið

Ný gjaldskrá Matvælastofnunar tekur gildi 

Ný gjaldskrá Matvælastofnunar tekur gildi  - myndistock/Edyta Falowska
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað nýja gjaldskrá Matvælastofnunar (MAST). 

Við gerð gjaldskrárinnar var haft að leiðarljósi að ná auknu gegnsæi og skýrleika við gjaldtöku MAST. Gjaldskráin byggir á  kostnaðargreiningu sem unnin var í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið KPMG auk þeirra kostnaðarþátta sem Matvælastofnun er heimilt að innheimta raunkostnað fyrir. Einnig var lögð áhersla á að hægt yrði að fylgjast reglubundið með kostnaði í síbreytilegu rekstrarumhverfi þar sem umfang þjónustuverkefna og áherslur í eftirliti breytast ört og tækniframfarir eru tíðar. 

Til hagræðingar fyrir þjónustuþega stofnunarinnar hefur gjaldskráin verið talsvert einfölduð frá þeirri fyrri, gjaldliðum er fækkað úr sjötíu í tvo. 

Gjaldskráin verður innleidd í þrepum og endurskoðuð árlega.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum