Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2011 Utanríkisráðuneytið

Breytingar í utanríkisþjónustunni

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir lætur að eigin ósk af störfum sendiherra í Osló 1. febrúar nk. Hún mun taka tímabundið launalaust leyfi og hverfa til starfa sinna sem prófessor við Háskóla Íslands.

Gunnar Pálsson, fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York, verður sendiherra Íslands í Osló frá 1. maí.

Gréta Gunnarsdóttir, sviðsstjóri alþjóða- og öryggissviðs utanríkisráðuneytisins, tekur við sem fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum frá 1. maí.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum