Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2021 Utanríkisráðuneytið

Milljónir kvenna ráða ekki yfir eigin líkama

Myndskreyting úr skýrslu UNFPA. - mynd

Því sem næst helmingur kvenna í 57 ríkjum hefur ekki vald til þess að taka ákvarðanir um eigin heilsu, getnaðarvarnir eða kynlíf, segir í niðurstöðum nýrrar skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kom út í dag. Samkvæmt skýrslunni hefur staða kvenna að þessu leyti versnað á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru. Aldrei hafa jafn margar konur staðið frammi fyrir ógn af kynbundnu ofbeldi og skaðlegum siðum eins og snemmbúnu hjónabandi.

Skýrslan er gefin út af Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) og kemur út árlega undir heitinu „State of World Population“ og hefur í ár yfirskriftina: My Body is My Own (Ég á minn eigin líkama).

„Sú staðreynd að tæpur helmingur kvenna geti ekki enn tekið eigið ákvarðanir um það hvort stunda eigi kynlíf, nota getnaðarvarnir eða leita til heilsugæslu, ætti að hneyksla okkur öll,“ segir Natalia Kanem framkvæmdastjóri UNFPA. „Í raun stjórna hundruð milljóna kvenna og stúlkna ekki eigin líkama. Líf þeirra stjórnast af öðrum.“

Natalia segir brotið á grundvallar mannréttindum kvenna og stúlkna og sé til marks um ójöfnuð og ofbeldi sem stafi af kynjamismunun. „Þetta er ekkert minna en tortíming andans og verður að stöðva,“ segir hún.

Fram kemur í skýrslunni að í tuttugu þjóðríkjum séu í gildi lög sem gefa nauðgara tækifæri að komast hjá refsingu með því að kvænast konunni eða stúlkunni sem hann nauðgaði. Í 43 ríkjum sé ekki að finna löggjöf sem verndar konur í hjónabandi frá því að vera nauðgað af eiginmanni. Þá eru nefnd dæmi um skilyrði fyrir nauðgunarákæru að viðkomandi kona fari í svokallað meydómspróf.

Að mati framkvæmdastjóra UNFPA þarf að virkja karlmenn sem bandamenn í baráttunni fyrir því að uppræta ójöfnuð kynjanna.

Mannfjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) er ein af áherslustofnunum utanríkisráðuneytisins í fjölþjóða þróunarsamvinnu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
10. Aukinn jöfnuður
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum