Hoppa yfir valmynd
15. október 2012 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tók þátt í lokahófi keppninnar, sem haldin var í 21. sinn.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2012
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2012

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda var haldin í 21. sinn á dögunum og lokahófið fór fram í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 13. október. Tilgangur keppninnar er að efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og hvernig þroska megi hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir.

Haldin var vinnusmiðja keppninnar með 40 þáttakendum og veitt voru 14 verðlaun. Um 1100 hugmyndir að verkefnum bárust frá 32 grunnskólum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, verndari keppninnar, ávarpaði ungmennin og afhenti verðlaun. Einnig ávarpaði Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra þátttakendur og veitti þeim viðurkenningarskjöl og farandbikar til grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur hugmyndir sínar fyrir gestum, en JCI stóð fyrir þjálfun í framsögu í vinnusmiðju keppninnar.

Farandbikarinn í flokki stærri skóla, sem veittur er fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni, hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ en þetta er fjórða árið í röð sem skólinn hlýtur bikarinn. Farandbikarinn í flokki minni skóla hlaut Brúarásskóli á Fljótsdalshéraði en þetta var í fyrsta skipti sem sá bikar var veittur.

Fyrstu verðlaun í flokki um landbúnað hlaut Kristinn Knörr Jóhannesson frá Grunnskólanum utan vatna. Verðlaun í flokki um tölvur og tölvuleiki hlaut María Jóngerð Gunnlaugsdóttir frá Egilsstaðaskóla. Í flokki uppfinninga hlaut Óttar Egill Arnarsson frá Hofsstaðaskóla verðlaun og í flokki útlits- og formhönnunar Ægir Örn Kristjánsson, einnig frá Hofsstaðaskóla.

Guðrúnarbikarinn hlaut María Jóngerð Gunnlaugsdóttir úr Egilsstaðaskóla en hann er veittur hugmyndasmið, sem er talinn hafa skarað fram úr fyrir hugmyndaauðgi, dugnað, kurteisi og samviskusemi. Guðrúnarbikarinn er afhentur til eignar en það var Anna Hulda Ólafsdóttir sem afhentihann til minningar um móður sína, Guðrúnu Þórsdóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum