Hoppa yfir valmynd
17. maí 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fjölhæfir íslenskunemar heilluðu ráðherra í Kína

Íslenskunemar tóku vel á móti Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í Háskóla erlendra fræða í Peking. - mynd
Glæsilegur hópur íslenskunema tók á móti Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra sem heimsótti Háskóla erlendra fræða í Peking í Kína í vikunni. Við skólann er einnig rannsóknarsetur íslenskra fræða en meðal þeirra sem ráðherra hitti í heimsókn sinni var Zhang Weidong, fyrrverandi sendiherra Kína á Íslandi sem nú er þar gestaprófessor.

„Við fengum góða kynningu á starfsemi skólans sem stundum er kölluð „vagga utanríkisþjónustu Kína“ enda hafa yfir 400 sendiherrar lokið þaðan námi í gegnum tíðina. Íslenska er meðal þeirra 100 tungumála sem kennd eru við skólann og það var afskaplega skemmtilegt að hitta nemendurna sem stóðu sig einkar vel – þau sungu fyrir okkur á íslensku, fluttu ljóð með miklum tilþrifum og svo áttum við gott spjall um Ísland og íslenska tungu,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. „Tungumálakunnátta opnar margar dyr og við fögnum öllum þeim sem velja að læra íslensku – við þurfum á slíkum vinum og málnotendum að halda til að efla tungumálið okkar og tryggja þróun þess til framtíðar. Sem dæmi um slíkan vin íslenskunnar vil ég sérstaklega nefna núverandi sendiherra Kína á Íslandi, Jin Zhijian, sem hjálpaði okkur við að undirbúa heimsóknina til Kína og vinnur ötullega að því að efla tengsl landanna tveggja.“

Íslenska hefur verið kennd við Háskóla erlendra fræða í Peking frá árinu 2008. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur umsjón með kennslu í íslensku og þjónustu við háskólakennara í íslensku við erlenda háskóla af hálfu íslenskra stjórnvalda.




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum