Hoppa yfir valmynd
15. mars 2022 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra undirritar rammasamninga við félagasamtök

Utanríkisráðherra undirritaði í gær rammasamninga við fjögur íslensk félagasamtök sem starfa á sviði mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. Rammasamningarnir munu veita félagasamtökunum fyrirsjáanleika sem auðveldar skipulagningu verkefna og eykur viðbragðsflýti samtakanna, til dæmis þegar neyðarástand skapast. 

Gengið var til samninga við Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða krossinn á Íslandi til að styðja verkefni á sviði mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu. Einnig var gerður samningur við SOS Barnaþorpin á Íslandi vegna þróunarsamvinnuverkefna. 

„Við stöndum á ákveðnum tímamótum með undirritun þessara samninga. Undanfarin tvö ár hefur þörfin fyrir mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu aukast og er því mikilvægt fyrir Ísland að leggja sitt af mörkum og gera enn meira til að standa við skuldbindingar okkar til alþjóðsamfélagsins. Þátttaka í þessum verkefnum er hluti af skyldum okkar sem þjóð meðal þjóða í alþjóðlegu samstarfi,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra við undirritunina. „Félagasamtök gegna hér mikilvægu hlutverki sem traustir samstarfsaðilar og eru mikil verðmæti fólgin í samstarfinu,“ sagði ráðherra ennfrekar. 

Samstarf stjórnvalda við íslensk félagasamtök á sviði mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnu á sér langa sögu og hefur fjölbreytni verkefna aukist á undanförnum árum. Lagt er upp með að eiga gott samstarf við öflug og virk félagasamtök sem stuðla að árangri í þróunarsamvinnu, framgangi heimsmarkmiðanna og bættum lífskjörum í þróunarríkjum.

 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi leggur áherslu á forvarnir og viðbrögð gegn ofbeldi á börnum. Hafa samtökin mikla reynslu í málaflokknum og hyggjast framkvæma þróunarsamvinnuverkefni í Síerra Leóne og Líberíu sem lúta að forvörnum gegn ofbeldi gagnvart börnum og þjónustu við þolendur. Á sviði mannúðaraðstoðar hyggjast samtökin leggja áherslu á uppbyggingu barnvænna svæða og að veita börnum heildstæða þjónustu sem verða fyrir ofbeldi. 

Hjálparstarf kirkjunnar leggur áherslu á stuðning við fólk og samfélög með það að leiðarljósi að auka sjálfbærni þeirra, virkja þátttakendur og byggja upp staðbundna þekkingu til að hraða þróun. Verkefni á sviði þróunarsamvinnu eru unnin í Afríku og er lögð áhersla á að auka viðnámsþrótt gegn loftlagsbreytingum, bætta lífsafkomu og jafnrétti kynjanna, og vinnu gegn fátækt. Á sviði mannúðar leggur Hjálparstarf kirkjunnar áherslu á aðstoð í samvinnu við Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna, ACT Alliance og hjálparstarf Lúterska heimssambandsins (Luterian World Federation, LWF). 

Rauði krossinn á Íslandi nær á hverju ári til þúsunda þolenda hamfara, ófriðar og örbirgðar um allan heim. Gegnir Rauði krossinn stoðhlutverki við stjórnvöld á sviði mannúðarmála, líkt og önnur landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans gera hvert í sínu landi. Á sviði þróunarsamvinnu er áhersla lögð á viðnámsþrótt og samfélagslega drifin þróunarverkefni, sjálfbæra endurheimt skóglendis og verkefni á sviði jafnréttismála. Á sviði mannúðaraðstoðar mun RKÍ byggja á reynslu af fyrri rammasamningi og halda áfram að efla það starf sem nú þegar er unnið á þessu sviði. 

SOS Barnaþorpin á Íslandi leggja áherslu á fjölskyldueflingu, sem felur í sér forvarnarverkefni þar sem sárafátækar barnafjölskyldur fá stuðning til að efla sjálfbærni og eigin þrótt. Eru áherslur þessar tilkomnar vegna reynslu SOS Barnaþorpanna á Íslandi á þessum sviðum hvað varðar aðkomu að mótun verkefna, fjármögnun og eftirlit, og áherslna Íslands á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu og SOS Barnaþorpanna á heimsvísu.

  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children á Íslandi. - mynd
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. - mynd
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar. - mynd
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum