Hoppa yfir valmynd
28. júní 2017 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2017 til 30. júní 2018

Föstudaginn 23. júní 2017 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-,  kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí 2017 til 30. júní 2018.

Samtals bárust fjórtán umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og  alifuglakjöti, unnum kjötvörum, ostum og eggjum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Samtals bárust þrettán gild tilboð í tollkvótann.

Níu tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 260.500 kg á meðalverðinu 256 kr./kg.  Hæsta boð var 401 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 95.000 kg á meðalverðinu 353 kr./kg.

Sex tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 91.000 kg á meðalverðinu 48 kr./kg.  Hæsta boð var 101 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 64.000 kg á meðalverðinu 63 kr./kg.

Ein umsókn barst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 15.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 345.000 kg.

Sex tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 173.000 kg á meðalverðinu 284 kr./kg.  Hæsta boð var 550 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á meðalverðinu 398 kr./kg.

Fjórar umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 19.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 53.000 kg.

Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 262.300 kg á meðalverðinu 396 kr./kg.  Hæsta boð var 600 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á meðalverðinu 538 kr./kg.

Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 52.000 kg á meðalverðinu 28 kr./kg.  Hæsta boð var 50 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 52.000 kg á meðalverðinu 19 kr./kg. Tollkvóti er 76.000 kg.

Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 162.500 kg. á meðalverðinu 508 kr./kg. Hæsta boð var 751 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg.  Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á meðalverðinu 655 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

4.500

Ekran ehf

18.500

Innnes ehf

30.000

Garri ehf

35.000

Kjötmarkaðurinn ehf

5.000

Krónan hf

2.000

Sláturfélag Suðurlands svf


Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

5.000

Ekran ehf.

200

Frú Lauga ehf

1.500

Garri ehf

40.000

Kjötmarkaðurinn ehf

17.300

Sláturfélag Suðurlands svf


Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

15.000

Ekran ehf


Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

55.000

Aðföng

4.000

Nautica ehf


Smjör fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

3.000

Aðföng

3.000

Ekran ehf.

5.000

Krónan ehf

8.000

Nautica ehf


Ostur fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

60.000

Aðföng hf

20.000

Ekran ehf

1.000

Frú Lauga ehf

2.800

Garri ehf

30.000

Innnes hf

4.000

KFC ehf

1.200

Mjólkursamsalan ehf


Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

15.000

Ekran ehf

1.000

Krónan ehf

36.000

Nautica ehf


Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2017 - júní 2018

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

1.000

Aðföng

55.000

Innnes ehf

5.000

KFC ehf

5.000

Krónan ehf

8.000

Nautica ehf

12.000

Parlogis ehf

 

Reykjavík, 28. júní 2017

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum