Hoppa yfir valmynd
15. desember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 505/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 505/2020

Þriðjudaginn 15. desember 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. október 2020, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. september 2020, um að synja beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. apríl 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 29. maí 2020. Með erindi 13. júlí 2020 óskaði kærandi eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. apríl 2020, eða frá þeim degi er uppsögn hans tók gildi. Með ákvörðun, dags. 21. september 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 28%. Beiðni kæranda um að umsókn tæki gildi 1. apríl 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. október 2020. Með bréfi, dags. 13. október 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 13. nóvember 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. nóvember 2020, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að fyrrverandi vinnuveitandi hans hafi dregið það í nokkra mánuði að segja honum upp störfum og því hafi hann sótt of seint um atvinnuleysisbætur. Hann hefði sannarlega átt að fá uppsagnarbréfið strax og þannig hefði hann getað sótt um atvinnuleysisbæturnar 1. apríl 2020. Kærandi hafi síðast fengið greidd laun fyrir mars 2020 og hafi uppsögnin tekið gildi 1. apríl 2020. Því fari kærandi fram á að fá greiddar atvinnuleysisbætur afturvirkt, eða frá þeim tíma sem hann hafi verið launalaus. 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem fram komi að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.   

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér almennt ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur í tímann en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Ljóst sé af gögnum málsins að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga [29. maí] 2020, en stofnunin hafi ekki getað vitað að hann væri án atvinnu fyrr en á þeim tíma. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir umsóknardag, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Með vísan til þess sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi eigi fyrst rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga frá 29. maí 2020.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 1. apríl 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Ljóst er að kærandi sótti um atvinnuleysisbætur með umsókn, dags. 29. maí 2020. Kærandi á því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006, þrátt fyrir að hafa verið atvinnulaus frá 1. apríl 2020. Ákvæði 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna eru fortakslaus að þessu leyti. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.



Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. september 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. apríl 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum