Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur í ofbeldismálum

Á myndinni eru Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og fulltrúar starfshópsins við afhendingu skýrslunnar - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, tók í dag við tillögum frá starfshópi sem hann hafði falið að að kortleggja og skilgreina þjónustuþörf fyrir gerendur í ofbeldismálum og þá sem eru í hættu á að fremja ofbeldisbrot. Þá var verkefni starfshópsins einnig það að leggja fram tillögur um viðeigandi úrræði og jafnframt með hvaða hætti mætti efla forvarnir og fræðslu með það að markmiði að koma í veg fyrir ofbeldisbrot.

Formaður hópsins var Sólveig Fríða Kjærnested, sviðsstjóri meðferðarsviðs hjá Fangelsismálastofnun. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum frá barnavernd, félagsþjónustu, heilsugæslu, o.fl., en starfshópurinn leitaði einnig til sérfræðinga sem þekkja vel til í umræddum málaflokki í þeim tilgangi að kortleggja stöðuna betur og fá betri mynd af því hvar aðgerða er helst þörf. 

Við afhendingu tillagnanna í dag kom fram að verkefnið hefði verið mikil áskorun og umræður farið vítt og breitt. Tillögurnar nái hins vegar að fanga vel þau verkefni sem bæði starfshópurinn og þeir sérfræðingar sem leitað var til töldu brýnast að lagt yrði til í þessum efnum.

Meðal þess sem starfshópurinn leggur til er að boðið verði upp á sértæka þjónustu fyrir einstaklinga sem vilja leita sér hjálpar í kjölfar brota eða telja sig vera í hættu á að beita ofbeldi, en til eru fyrirmyndir af sambærilegum verkefnum erlendis frá sem hafa reynst vel. Einnig er lagt til að sett verði á fót fjölskyldumeðferðarþjónusta fyrir börn og fullorðna þar sem hægt verður að leita þjónustu og ráðgjafar þar sem markmiðið er að bregðast við óæskilegri hegðun og gjörðum á upphafsstigum, áður en mál verða þyngri og minnka þannig álag á fjölskyldur, sem og að draga úr þörf fyrir mun kostnaðarsamari úrræði.

Þá vekur starfshópurinn athygli á öðrum mikilvægum þáttum er lúta m.a. að búsetuúrræðum fyrir einstaklinga þegar þörf er að tryggja öryggi almennings, rannsóknarheimildum lögreglu, sáttarmiðlunarþjónustu, o.fl. 

Ásmundur Einar þakkaði starfshópnum fyrir vel unnin störf og sagði að tillögurnar yrðu nú teknar til skoðunar í ráðuneytinu. „Ég fagna þessum tillögum því það hefur lengi verið kallað eftir auknum úrræðum fyrir þá einstaklinga sem beita ofbeldi. Við munum núna skoða hvernig við getum unnið þessar tillögur áfram og með tilliti til annarra verkefna á þessu sviði sem nú þegar er verið að vinna að á vettvangi félagsmálaráðuneytisins,“ sagði Ásmundur Einar. „Það er mikilvægt að horfa á þessi mál heildstætt, ekki síður út frá sjónarhorni gerenda sem margir hverjir vilja bæta fyrir gjörðir sínar. Það þarf að vera hægt að styðja þá í því með því að gera úrræði bæði sýnilegri og aðgengilegri. Með því móti tel ég mögulegt að bæta líðan allra hlutaðeigandi og sýna forvarnir í verki í þessum málaflokki.“  

Skýrslan: Tillögur starfshóps um fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur í ofbeldismálum

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum