Hoppa yfir valmynd
26. ágúst 2022 Matvælaráðuneytið

Matvælaráðherra gefur út fyrstu sameinuðu stefnuna í landgræðslu og skógrækt

Matvælaráðherra hefur gefið út fyrstu sameinuðu stefnuna í landgræðslu og skógrækt auk aðgerðaáætlunar.

Stefnan er unnin samkvæmt nýlegum lögum um landgræðslu og um skóga og skógrækt. Stefna stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt felur í sér framtíðarsýn, gildi og áherslur í málaflokknum og endurspeglast að verulegu leyti í þeim lögum sem gilda um málaflokkinn. Stefnan ræðst einnig af þróun mála á alþjóðlegum vettvangi og skuldbindingum Íslands í samstarfi við aðrar þjóðir, svo sem á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðlegra stofnana.

Verkefnisstjórnir voru skipaðar í júní 2019 og höfðu það hlutverk að móta tillögur að landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt. Verkefnisstjórnirnar tvær unnu að sínum tillögum og kynntu þær í opnu samráði á vormánuðum 2021. Í kjölfarið skiluðu þær tillögum sínum til ráðuneytisins, ásamt umhverfismati og samantekt á helstu athugasemdum.

Áherslur matvælaráðherra snúa að vernd, viðgangi og heilleika vistkerfa á grunni vistkerfisnálgunar. Einnig eflingu náttúrumiðaðra lausna í loftslagsmálum sem samræmast alþjóðlegum skuldbindingum, stuðla að sjálfbærri landnýtingu, efla þekkingu, samstarf og lýðheilsu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land.

„Ég legg mikla áherslu á að matvælaframleiðsla byggi á sjálfbærri nýtingu, hvort sem er
til lands eða sjávar. Með þessari áætlun leggja bæði landgræðsla og skógrækt sitt af mörkum til að stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Til verða atvinnutækifæri í ríkari auðlindum og nýting byggir á sjálfbærum grunni,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt nær til áranna 2022-2026 og mun því móta forgangsröðun í aðgerðum stjórnvalda til næstu ára. Meðal skilgreindra aðgerða eru rannsóknir á áhrifum landgræðslu, skógræktar og endurheimtar votlendis á lífríki, gerð nýrra gæðaviðmiða við val á landi til skógræktar og mat á kolefnisjöfnuði fyrir losunarbókhald í loftslagsmálum. Beinar aðgerðir snúa einkum að endurheimt vistkerfa á röskuðu landi, endurheimt votlendis, endurheimt náttúruskóga og skógrækt.

Land og líf, landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt til ársins 2031 og Aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt 2022-2026 eru aðgengilegar á vef ráðuneytisins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni
11. Sjálfbærar borgir og samfélög

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum