Hoppa yfir valmynd
25. september 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Staða áætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma

Frá Neskaupsstað - myndHeilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra hefur sett á áætlun framkvæmdir við gagngerar endurbætur á hjúkrunarheimilunum á Patreksfirði, Ísafirði, í Neskaupsstað og í Hveragerði þar sem brýnt er orðið að bæta aðstæður og aðbúnað íbúa. Ráðuneytið hefur unnið samantekt um stöðu framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma og framhald þeirrar áætlunar til ársins 2024.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í apríl 2018 áætlun um stórátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma á landsvísu til ársins 2023. Hún fól í sér endurskoðun á eldri áætlun með auknu framkvæmdafé upp á 10,5 milljarða króna og þar með getu til að ráðast í framkvæmdir við rúmlega 300 hjúkrunarrými til viðbótar við þau byggingaráform sem áður höfðu verið kynnt. Áætlunin sem ráðherra kynnti tók því til uppbyggingar og endurbóta á tæplega 800 hjúkrunarrýmum til ársins 2023.

Í töflunni hér að neðan sést staða framkvæmda við uppbyggingu hjúkrunarheimila samkvæmt framkvæmdaáætlun til ársins 2023, auk þess sem bætt hefur verið inn í áætlunina eins og að framan greinir, með framlengingu hennar til ársins 2024. Þeim upplýsingum til viðbótar má rifja upp að nýtt hjúkrunarheimili fyrir 40 íbúa á Seltjarnarnesi var tekið í notkun fyrr á þessu ári.

Biðlistar á höfuðborgarsvæðinu að styttast 

Samkvæmt nýrri samantekt Embættis landlæknis hefur fjölgun hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu þegar leitt til þess að biðlistar hafa styst. Þess má vænta að biðlistar styttist enn frekar þegar tímabundinn rekstur 38 hjúkrunarrýma hefst á gamla Sólvangi í Hafnarfirði 1. október næstkomandi en þau verða í rekstri þar til hjúkrunarheimilið við Sléttuveg í Reykjavík verður tekið í notkun.

Í samræmi við áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma er í fjárlagafrumvarpi næsta árs gert ráð fyrir að auka framlög til uppbyggingar hjúkrunarrýma um 1,8 milljarð króna á næsta ári. Aukin framlög til reksturs hjúkrunarrýma sem leiðir af fjölgun þeirra nemur tæpum 1,9 milljörðum króna. Munar þar mestu um 99 hjúkrunarrými á nýju heimili við Sléttuveg í Reykjavík sem taka á í notkun í mars.

Hjúkrunarheimili Fjöldi rýma Þar af ný rými Verkstaða Áætluð verklok
Sólvangur Hafnarfirði 60 1 Lokið Sept. 2019
Sléttuvegur í Reykjavík 99 99 Unnið að framkvæmdum innanhúss Mars 2020
Árborg 60 25 Útboð í meðferð hjá Framkvæmdasýslu ríkisins og Ríkiskaupum Haust 2021
Höfn 30 6 Í hönnun Vor 2021
Húsavík 60  6 Undirbúningur Hönnunarsamkeppni Haust 2021
Stykkishólmur 18 0 Unnið að hönnun Árslok 2021

Sólvangur gamli Hafnarfirði

33 33 Unnið að hönnun, framkvæmdir hefjast e. opnun Sléttuvegar Óvíst
Boðaþing Kópavogi 64 64 Unnið að samningum við sveitarfélag Vor 2023
Akureyri 60 60 Unnið að samningum við sveitarfélag Vor 2023
Reykjanesbær 60 30 Unnið að samningum við sveitarfélag Vor 2023
Mosfellsbær 44 44 Í bið Óvíst
Reykjavík 200 200 Unnið að lóðarvali Óvíst
Samtals 788 568    

 

Taflan hér að ofan er úr meðfylgjandi greinargerð þar sem meðal annars eru birtar upplýsingar um dvalartíma íbúa á hjúkrunarheimilum, biðtíma eftir hjúkrunarrými og fleira. Eins og þar kemur einnig fram leiðir þarfagreining skýrt í ljós að þótt fjölgun hjúkrunarrýma sé nauðsynleg þarf að leggja áherslu á margvísleg önnur úrræði til að mæta vaxandi þjónustuþörf eftir því sem öldruðum fjölgar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum