Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2019 Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara afgreitt úr ríkisstjórn

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að frumvarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til laga um vernd uppljóstrara verði lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp.

Markmið frumvarpsins er að á Íslandi gildi skýr löggjöf um vernd uppljóstrara sem taki mið af ábendingum alþjóðastofnana og fordæmum þeirra nágrannaríkja sem fela í sér bestu framkvæmdina á þessu sviði. Frumvarpið var upphaflega samið af nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis sem forsætisráðherra skipaði þann 16. mars 2018. Ákvæði þess gilda um starfsmenn sem greina í góðri trú frá upplýsingum eða miðla gögnum um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda þeirra.

Í frumvarpinu er greint á milli innri og ytri uppljóstrunar og miðað við að hið síðarnefnda sé jafnan ekki heimilt nema hið fyrrnefnda hafi verið reynt til þrautar og um sé að ræða brot sem varðar fangelsisrefsingu eða í húfi séu afar brýnir almannahagsmunir. Í frumvarpinu er kveðið á um að miðlun upplýsinga eða gagna, að uppfylltum skilyrðum frumvarpsins, teljist ekki brot á þagnar- eða trúnaðarskyldu starfsmanns, leggi hvorki refsi- né skaðabótabyrgð á hann og geti ekki heldur leitt til stjórnsýsluviðurlaga eða íþyngjandi úrræða að starfsmannarétti. Þá er lagt sérstakt bann við því að láta hvern þann sæta óréttlátri meðferð sem miðlað hefur upplýsingum eða gögnum samkvæmt framansögðu. Lögð er sönnunarbyrði á atvinnurekanda á þann hátt að ef líkur eru leiddar að óréttlátri meðferð skal hann sýna fram á að sú sé ekki raunin og greiða skaðabætur ef það tekst ekki. Mælt er fyrir um að veita skuli starfsmanninum gjafsókn komi til ágreinings fyrir dómi um það hvort miðlun hans á gögnum eða upplýsingum hafi samrýmst skilyrðum frumvarpsins. Loks er lagt til að lögfestar verði heimildir til að greina ríkisendurskoðanda og Vinnueftirliti ríkisins frá upplýsingum, sambærilegar þeirri heimild sem nú er að finna í 18. gr. laga um umboðsmann Alþingis , sem bættist við lögin árið 2018.

Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum