Hoppa yfir valmynd
16. september 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 314/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 16. september 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 314/2020

Í stjórnsýslumáli nr. KNU20080004

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

Þann 6. ágúst 2020 barst kærunefnd útlendingamála kæra [...], kt. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir nefnd kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. júlí 2020, um að synja umsókn hennar um ótímabundið dvalarleyfi.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 20. júlí 2020. Þann 6. ágúst sl. barst kærunefnd tilkynning um kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar. Er samkvæmt framansögðu ljóst að kærufresturinn, sem var til 2. ágúst 2020, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var kæranda, með tölvupósti kærunefndar dags. 27. ágúst 2020, veitt tækifæri til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í greinargerð kæranda, dags. 28. ágúst sl., segir að móðir kæranda hafi verið mjög veik undanfarið en hún hafi látist þann dag. Hafi framangreint haft mikil áhrif á kæranda sem hafi orðið til þess að hún hafi kært ákvörðun Útlendingastofnunar of seint.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér geti t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Ákvörðun Útlendingastofnunar var send til kæranda með ábyrgðarpósti þann 10. júlí 2020. Tilkynning var skilin eftir á heimili hennar þann 17. júlí og afhending bókuð þann 20. júlí 2020. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Líkt og áður hefur komið fram barst kærunefnd ekki kæra frá kæranda fyrr en þann 6. ágúst 2020 en 15 daga kærufrestur rann út þann 2. ágúst sé miðað við þann dag sem tilkynning um póstsendinguna barst kæranda. Í skýringum kæranda á því hvers vegna kæra barst of seint dags 28. ágúst sl. kveður kærandi að móðir hennar, sem búsett sé í heimaríki, hafi verið veik og að hún hafi látist þann sama dag og því hafi hugur hennar og annarra verið annars staðar og gleymst hafi að kæra. Þá kvað kærandi einnig að hún hafi ekki lengur búið á því heimilisfangi sem ákvörðunin hafi verið send á. Af gögnum málsins er ljóst að ákvörðun Útlendingastofnunar var sótt á pósthús í kjölfar tilkynningar sem barst á heimilisfang kæranda. Þá er einnig ljóst að kærandi og umboðsmaður hennar voru í samskiptum við Útlendingastofnun dagana 23., 24., 27. og 30. júlí þar sem þau fengu leiðbeiningar um að umsókn hennar hafi verið synjað og leiðbeiningar um að hún þyrfti að leggja inn umsókn um endurnýjun á dvalarleyfi sínu á grundvelli hjúskapar. Þá skilaði kærandi inn umsókn um endurnýjun til stofnunarinnar þann 4. ágúst 2020. Er það mat kærunefndar með tilliti til ofangreinds að aðstæður kæranda að því er varðar veikindi móður hennar á þeim tíma séu ekki þess eðlis að afsakanlegt verði talið að kæra hafi ekki borist fyrr. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

Úrskurðarorð

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

The Immigration Appeals Board dismisses the applicant appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Hilmar Magnússon                                                                   Gunnar Páll Baldvinsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum