Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 557/2021 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 557/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21100045

 

Beiðni […] um endurupptöku

 

I.          Málsatvik

Þann 8. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. janúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Írak (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 19. apríl 2021.

Þann 23. apríl 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku og frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Með úrskurði kærunefndar, dags. 10. júní 2021, var beiðnum kæranda hafnað.

Þann 15. október 2021 óskaði kærandi eftir endurupptöku málsins að nýju. Dagana 22. og 27. október 2021 bárust upplýsingar frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um málsmeðferð í máli kæranda.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.            Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að umsókn hans var lögð fram hér á landi og tafir á meðferð málsins séu ekki á hans ábyrgð skuli taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með vísan til framangreinds er gerð sú krafa að mál hans verði endurupptekið og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Til vara er gerð sú krafa að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá kærunefnd með vísan til 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga, sbr. einnig 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

III.          Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst sé að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 10. október 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun, dags. 22. október 2021, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutning kæranda, kemur fram að Útlendingastofnun líti svo á að kærandi hafi ekki tafið mál sitt.

Í upplýsingum sem bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 27. október 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild þann 30. júní 2021. Haft hafi verið samband við kæranda símleiðis þann 12. júlí 2021. Kærandi hafi greint frá því að hann vilji ekki fara aftur til Grikklands og muni ekki undirgangast Covid-19 sýnatöku. Þar sem afstaða kæranda hafi legið fyrir hafi stoðdeild ekki haft samband aftur við kæranda.

Af svari frá stoðdeild má því ráða að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því almennt að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Þá má sjá af samskiptum stoðdeildar við kæranda að síðasta tilraun til samskipta hennar við kæranda hafi verið þann 12. júlí 2021, en líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 10. október 2021. Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun. Við þessar aðstæður telur kærunefnd að það hefði verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti, m.a. í því skyni að fyrirbyggja misskilning og tryggja sönnun, að upplýsa kæranda með formlegum og sannanlegum hætti um skyldur sínar gagnvart Útlendingastofnun. Vegna þessa hafi verið tilefni til þess að láta kæranda undirrita eyðublað þar sem fram komi annars vegar afstaða kæranda um að hann hafi ekki í hyggju að sýna samstarfsvilja við framkvæmd ákvörðunar stjórnvalda, þ. á m. að gangast undir Covid-19 sýnatöku sem geri íslenskum stjórnvöldum kleift að undirbúa flutning hans til Grikklands. Kærunefnd telur að munnleg almenn yfirlýsing kæranda um að hann vilji ekki undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera íslenskum stjórnvöldum kleift að flytja hann til Grikklands geti ekki, ein og sér, talist vera töf á afgreiðslu málsins.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds er varakröfu kæranda hafnað.

 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                     Sandra Hlíf Ocares

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum