Hoppa yfir valmynd
6. desember 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Staða líffæragjafa könnuð

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa sett á laggirnar vinnuhóp sem á að kanna stöðu sjálfviljugra líffæragjafa einkum með tilliti til greiðslna vegna tímabundinnar óvinnufærni eftir líffæragjöf.

Vinnuhópurinn var skipaður 28. nóvember 2007 og ber að skila skýrslu eigi síðar en 1. apríl 2008. Óskað var eftir tilnefningum frá félagsmálaráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu, Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, Landlæknisembættinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Tryggingastofnun ríkisins og frá nefnd um líffæraígræðslur.

Skipan vinnuhópsins

Á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra er einnig starfandi nefnd sem fjallar um líffæraígræðslur og var hún skipuð fyrr í haust. Nefndinni er ætlað að vera ráðgefandi á sviði ígræðslu líffæra, safna saman upplýsingum um stöðu mála á hverjum tíma, svo sem fjölda líffæragjafa og líffæraþega, biðlista og biðtíma eftir líffæraskiptum. Nefndin skal einnig gefa árlega skýrslu um hið norræna samstarf, sem fer fram á vegum Scandiatransplant. Þá skal nefndin koma með tillögur til ráðherra um hugsanlegar breytingar á lögum eða reglugerðum sem varða málaflokkinn eftir því sem nefndin telur ráðlegast hverju sinni.

Nefndin er þannig skipuð:
Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, formaður
Runólfur Pálsson, yfirlæknir, Landspítalanum
Kristján Guðjónsson, framkvæmdastjóri sjúkratryggingasviðs, Tryggingastofnun ríkisins
Magnús Böðvarsson, sérfræðingur, Landspítalanum, fulltrúi Íslands í Scandiatransplant.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum