Hoppa yfir valmynd
11. maí 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 33/2016 Úrskurður 6. maí 2016

Mál nr. 33/2016                     Aðlögun kenninafns: Pétursson

 


Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 33/2016 en erindið barst nefndinni 18. apríl:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 18. apríl 2016, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um að eiginnafn föður hans, Petar, verði lagað að íslensku máli og að hann beri kenninafnið Pétursson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Pétursson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum