Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2020 Innviðaráðuneytið

Viðauki við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 - tillaga til kynningar

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti vekur athygli á því að tillaga Skipulagsstofnunar að viðauka við landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt umhverfismati tillögunnar er nú í opinberu samráðsferli hjá stofnuninni, í samræmi við 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í tillögunni er sett fram stefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu í tengslum við framkvæmd skipulagsmála og tekur hún eftir atvikum til allra viðfangsefna gildandi landsskipulagsstefnu. Auk þess felur tillagan í sér breytingar á gildandi landsskipulagsstefnu varðandi skipulag haf- og strandsvæða m.t.t. laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða.

Tillagan er aðgengileg á vef landsskipulagsstefnu, www.landsskipulag.is, og á vef Skipulagsstofnunar, www.skipulag.is. Gögnin liggja jafnframt frammi til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík.

Kynningarfundur um tillöguna verður haldinn á vefnum fimmtudaginn 19. nóvember nk. kl. 14-16. Fundinum verður streymt á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar og er ekki þörf á að skrá sig til að fylgjast með streyminu.

Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun er til og með 8. janúar 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum