Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2023 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi - myndiStock/OlgaMiltsova

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi nr. 1177/2023, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið

1. janúar 31. desember 2024.

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.:

 

 

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01.-31.12.24

13.000

0

0

 

Berist umsóknir um meira magn um innflutning en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við skrifstofu landbúnaðar í síma 545-9700 eða á eða á [email protected]. Sjá tengla fyrir nánari upplýsingar um vefkerfið og leiðbeiningar.

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; þriðjudaginn 14. nóvember 2023 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, þriðjudaginn 21. nóvember 2023.

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum