Hoppa yfir valmynd
2. september 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 69/2019 Úrskurður 2. september 2019

Mál nr. 69/2019                     Millinafn:       Haukdal

 

 

Hinn 2. september 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 69/2019 en erindið barst nefndinni 26. júlí. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 7. ágúst en afgreiðslu þess frestað.

Nafnið Haukdal er til sem ættarnafn á Íslandi og borið sem slíkt í þjóðskrá. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, er ættarnafn einungis heimilt sem millinafn í eftirfarandi tilvikum:

  • Hver maður, sem ber ættarnafn í þjóðskrá má breyta því í millinafn.
  • Hver maður, sem ekki ber ættarnafn en á rétt til þess, má bera það sem millinafn.
  • Maður má bera ættarnafn sem millinafn hafi eitthvert alsystkini hans, foreldri, afi eða amma borið það sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn.
  • Maður á og rétt á að taka sér ættarnafn maka síns sem millinafn. Honum er einnig heimilt að taka sér nafnið sem millinafn beri maki hans það sem millinafn.

Samkvæmt erindi úrskurðarbeiðanda á ekkert þesssara tilvika við um hana og þannig ekki unnt að fallast á Haukdal sem millinafn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Haukdal er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum