Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 392/2019 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 392/2019

Þriðjudaginn 5. nóvember 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. september 2019, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. september 2019, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði inn kæru, sem rituð var á ensku, hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 19. september 2019. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, sem ritað var á ensku, var kæranda tilkynnt að eingöngu væri tekið við kærum á íslensku. Óskað var eftir að kærandi legði inn kæru sína á íslensku og tekið fram að nefndin myndi að því loknu taka mál hans til meðferðar. Kæranda var jafnframt bent á að hann gæti fengið aðstoð hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands. Með tölvupóstum starfsmanns úrskurðarnefndarinnar 25. september og 1. október 2019 var beiðni nefndarinnar ítrekuð.  

Samkvæmt 8. gr. laga nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er íslenska mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda, jafnt ríkis sem sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnana sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu. Með vísan til þess ber úrskurðarnefnd velferðarmála einungis að taka til meðferðar kærur sem uppfylla þetta skilyrði.

Kærandi hefur ekki orðið við beiðni úrskurðarnefndarinnar um að leggja inn kæru á íslensku. Að því virtu er það niðurstaða nefndarinnar að kæran sé ekki tæk til meðferðar. Kæru er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum